Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Jólageitin er mætt við Ikea – Nú mega jólin koma!

$
0
0

Jólageitin er mætt við Ikea – Nú mega jólin koma!

Hún er mætt! Jólageitin víðfræga og stendur hún nú vaktina á hólnum við Ikea og fær að láta ljós sín skína.

,,Við bjóðum hana innilega velkomna að lýsa upp skammdegið fyrir okkur í Kauptúninu,” segir á vef Ikea, en geiti kom fyrir 6 dögum þangað. Sjón er sögu ríkari! Nú eru aðeins 68 dagar til jóla.

Jólageitin hefur verið sett upp árlega s.l. níu ár en oftar en ekki hefur líftími hennar verið styttri en ætlast var til.

Árið 2010 var kveikt í jólageitinni fyrir utan Ikea og árið 2011 féll jólageitin í miklu óveðri. Geitin skemmdist lítillega í óveðrinu og var sett upp aftur á sinn stað. Árið 2012 var jólageitin brennd til kaldra kola öðru sinni.

Árið 2013 féll geitin aftur á hliðina í óveðri. Undanfarin ár hefur geitin verið vöktuð allan sólarhringinn af öryggisvörðum og hefur það ekki dugað til, því að í fyrra var t.d. kveikt í geitinni aftur.

 

 


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652