Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Benjamín í 12 mánaða fangelsi fyrir fjársvik

$
0
0

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt Benjamín Magnús Óskarsson í 12 mánaða fangelsi og svipt hann ökuréttindum ævilangt fyrir fjögur brot sem framin voru á árunum 2016 til 2018

Umferðarlagabrot framin árið 2017,  með því að hafa:

  1.  Sunnudaginn 1. október, ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (tetrahýdrókannabínól í blóði 2,0 ng/ml) norður Reykjanesbraut við Lækjargötu í Hafnarfirði, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.
  2.  Föstudaginn 24. nóvember, ekið bifreið sviptur ökurétti og óhæfur til að stjórna henni örugglega vegna áhrifa ávana- og fíkniefna (tetrahýdrókannabínól í blóði 20 ng/ml og metaamfetamín 40 ng/ml) suður Reykjanesbraut við Vífilstaðaveg í Garðabæ, þar sem lögregla stöðvaði aksturinn.

Fyrir auðgunarbrot:

  1. Fjársvik, með því hafa  í tvígang mánudaginn og þriðjudaginn 25. og 26. júlí 2016 blekkt starfsmann Arion banka og látið millifæra í tveimur færslum kr. 500.000, af reikningi nr. X á nafni A, X, yfir á eigin reikning nr. X á nafni ákærða, og reikningsnúmer, X, á nafni B, kt. X, og þannig svikið út samtals kr. 1.000.000,-.
  2. Þjófnað, með því að hafa fimmtudaginn 12. júlí 2018 í versluninni  Útilíf í Smáralind, Kópavogi, stolið Nike bol og peysu, samtals að fjárhæð kr. 16.980,-.

Benjamín á sér þó að baki mun lengri afbrotaferil en hann var dæmdur árið

2004 Samkvæmt sakavottorði ákærða hlaut hann dóm 30. apríl 2004 fyrir ránstilraun og var refsing ákveðin 8 mánaða fangelsi skilorðsbundið í 3 ár.
Með dómi 24. nóvember sama ár var skilorðsdómurinn tekinn upp og ákærða dæmdur hegningarauki fyrir fjársvik. Var refsing þá ákveðin 9 mánaða fangelsi skilorðsbundið í 3 ár.

2005 Refsing samkvæmt þeim dómi var einnig dæmd upp með dómi 1. febrúar 2005, sem ákærði hlaut fyrir fjársvik. Þar var refsing ákveðin 11 mánaða fangelsi skilorðsbundið í 3 ár.
Ákærði hlaut næst dóm 20. apríl 2005 fyrir fíkniefnabrot en var ekki gerð refsing.
Þá hlaut ákærði dóma 23. júní og 28. nóvember 2005 fyrir fíkniefna- og umferðarlagabrot. Með þeim dómi var fyrri skilorðsdómur látinn haldast og ákærða gerð refsing sér í lagi með fésekt.

2006 fyrir fíkniefnalagabrot með því að hafa í Reykjavík, keypt og haft í vörslum sínum 18,84 g af hassi.

2007: 
1. Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa, föstudagskvöldið 4. maí 2007, um kl. 23:24 ekið bifreið sviptur ökurétti, eftir Aðalgötu og inn á Strandveg á Sauðárkróki, án þess að hafa virt stöðvunarskyldu.
2. Fyrir umferðarlagabrot, með því að hafa mánudagskvöldið 28. maí 2007 um kl. 22:17, ekið bifreið sviptur ökuréttindum, norður Norðurlandsveg og í gegnum Blönduós, óhæfur til að stjórna bifreiðinni örugglega vegna áhrifa tetrahýdrókannabínólsýru.
3. Fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa á ofangreindum tíma, þegar lögreglan stöðvaði akstur ökumanns skammt austan við Blönduós, haft vörslur á 3,79 grömmum af hassi og 0,65 grömmum af tóbaksblönduðu hassi, en efnin fundust við leit lögreglu í bifreið á hans vegum.

2008 fyrir fíkniefnalagabrot, með því að hafa fimmtudagskvöldið 20. desember 2007 um klukkan 22:00, haft í vörslum sínum 17,53 grömm af Maríhúana, en efnin voru geymd í tösku í farangursrými bifreiðarinnar X sem ákærði ók og stöðvuð var á Norðurlandsvegi við almennt umferðareftirlit.

2009 
1. Að hafa laugardaginn 10. janúar 2009, um klukkan 15:50, haft 32,41 grömm af hassi í vörslum sínum að Túnbraut 9 á Skagaströnd, en efnunum framvísaði ákærði til lögreglu.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652