Allt frá ársbyrjun 2000 hefur SÁÁ gert mánaðarlegar kannanir á verðlagi á ólöglegum vímuefnum „á götunni.“ Allir innritaðir sjúklingar á Sjúkrahúsinu Vogi, sem hafa heilsu til, taka þátt í könnun þar sem spurt er hve margir þeirra hafa keypt slík efni og hvað þeir greiddu fyrir efnin. Meðaltalsverð er síðan reiknað.
Alls svöruðu 93 einstaklingar verðkönnun í lok ágúst og september 2018. Í ljós kom að 58% aðspurðra höfðu keypt ólögleg vímuefni/lyf, eða 54 einstaklingar. Meðalaldur þeirra var 29 ár en meðalaldur hinna sem ekki höfðu keypt slík efni var rúm 49 ár.
Athygli vekur að verðið á sterkum verkjalyfjum hefur lækkað undanfarna mánuði, t.d. kostaði 80 mg tafla af OxyContin 8.000 kr. í janúar en kostar 4.600 kr. í ágúst og 5.400 kr. í september.
Tæpur helmingur hafði keypt örvandi vímuefni, eða 45%, þar af höfðu flestir keypt kókaín (34%) og/eða amfetamín (33%).
Svipaður fjöldi, eða 44% einstaklinga, keypti kannabisefni, langflestir gras (43%). Rúm 31% aðspurðra höfðu keypt lyfseðilsskyld lyf á svörtum markaði.
Fjórðungur keypti benzódíazepín-lyf, eða róandi lyf, flestir Xanax (16%) og 14% keyptu sterk verkjalyf í flokki ópíóíða. Tæp 9% keyptu ofskynjunarlyfið LSD og önnur lyf ganga kaupum og sölum, eins og Lyrica og Gabapentin. Rúm 18% aðspurðra höfðu notað kannabisefni í rafsígarettur.
Í ágúst og september höfðu 14% aðspurðra sprautað vímuefnum í æð. Þessir einstaklingar höfðu allir nema einn fengið nálar og sprautur í apótekum en 5 einstaklingar höfðu fengið nálar og sprautur hjá vinum og neyslufélögum og 5 hjá frú Ragnheiði. Aðrir möguleikar voru Konukot, frá vinum og annars staðar. Flestir nefndu fleiri en einn stað.