Krafist gæsluvarðhalds vegna brunans á Selfossi
Búið er að flytja líkamsleifar þeirra er létust í bruna á Kirkjuvegi í gær af vettvangi og bíða krufningar.
Tæknideild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu vinnur að vettvangsrannsókn ásamt sérfræðingum Mannvirkjastofnunar.
Búið er að taka skýrslu af öðrum þeirra sem er í haldi lögreglu vegna brunans og skýrslutökur yfir hinum aðilanum standa yfir.
Gera má ráð fyrir að báðir aðilarnir verði leiddir fyrir dómara síðar í dag og gæsluvarðhalds krafist yfir þeim í þágu rannsóknar málsins. Rökstuddur grunur er um að eldsupptök séu af mannavöldum.