Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Miðflokkurinn styður áherslur verkalýðshreyfingarinnar um afnám verðtryggingar og í húsnæðis- og skattamálum

$
0
0

Miðflokkurinn hefur lagt fram stjórnmálaályktun á flokksráðsfundi flokksins sem er haldinn núna um helgina á Akureyri. Kemur m.a. fram þar að Miðflokkurinn bendir á nokkur atriði sem ríkisvaldið getur lagfært í komandi kjarasamningum. Og má þar nefna húsnæðismál og afnám verðtryggingar. Miðflokkurinn tekur m.a. undir áherslur verkalýðshreyfingarinnar varðandi þau atriði. 

Mæta verður kröfum aldraðra um sanngjarna framfærslu. Öryrkjar, aldraðir, sem og aðrir eiga alltaf rétt á að búa við mannlega reisn. Flokksráðsfundurinn skorar einnig á ríki og sveitarfélög að grípa tafarlaust til aðgerða vegna slæmrar stöðu á húsnæðismarkaði og tryggja nægt lóðaframboð.

Þá er bent á að heildarskattheimta í dag sé með því hæsta sem þekkist á meðal vestrænna þjóða í boði Sjálfstæðisflokksins eins og það er orðað. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gagnrýndi ríkisstjórnina fyrir aumingjaskap og að sjá engin tækifæri eða lausnir.

Ríkisstjórn sem að snýst bara um stóla og þar sem að allir gefa öll sín mál eftir, ríkisstjórnin sé bara um stólana en ekki um hugsjónir eða stefnu og væri bæði verklítil og kjarklaus.

„Þessi rík­is­stjórn sýn­ir al­gjör­an aum­ingja­skap í því hvernig hún nálg­ast stóru verk­efni sam­fé­lags­ins,“ sagði Sig­mund­ur og nefndi að rík­is­stjórn­in væri kerf­is­stjórn sem eft­ir­láti kerf­inu að stjórna fyr­ir sig. Átti hann bæði við emb­ætt­is­manna­kerfið og fjár­mála­kerfið, þar á meðal er­lenda vog­un­ar­sjóði. Flokksráð mótmælir innleiðingu þriðja orkupakkans. Hann sagði einnig, að engin rík­is­stjórn hefði misst stuðning eins hratt og þá sem nú er við völd.

 Hér er hægt að lesa stjórnmálaályktunina í heild sinni:

Á grundvelli hugmynda verða stjórnmálaflokkar til, og það fólk sem í þá safnast er þar til að hafa áhrif. Áhrif til að bæta samfélagið. Færa það í þá átt sem stefnan býður. Á hundrað ára fullveldisafmæli virðist allt benda til þess að ríkisstjórnin ætli sér að innleiða hinn svokallaða þriðja orkupakka Evrópusambandsins, þrátt fyrir ótal viðvaranir, heiman frá og að utan.

Það er ótækt að jafn stórt hagsmunamál og hér um ræðir sé látið reka á reiðanum af starfandi stjórnvöldum. Að líkindum í trausti þess að málið, sem kallar á verulegt fullveldisframsal, renni í gegnum ríkisstjórn og Alþingi, án þess að til varna verði tekið. Á hundrað ára fullveldi Íslands virðist ríkisstjórn landsins fyrirmunað að gera það eina sem þjóðin krefst af henni, það er að verja fullveldið, fullveldið sem svo margir lögðu svo mikið á sig til að öðlast.

Í málefnum landbúnaðarins skín í gegn áhugaleysið gagnvart fullveldinu. Rök er snúa að heilnæmi innlends landbúnaðar eru afgreidd sem forpokuð, rök sem snúa að mikilvægi innlendrar matvælaframleiðslu og matvælaöryggi fyrir íslenska þjóð eru afgreidd sem afturhaldssöm og sögð merki um þjóðernishyggju.

Tilfinningin fyrir stolti gagnvart eigin þjóð og því sem hún hefur áorkað virðist valda óþoli hjá litlum en háværum hluta þjóðarinnar. Á undanförnum árum hefur áhersla íslenskra stjórnmálamanna færst frá því að ná árangri fyrir umbjóðendur sína, yfir í það að á engan slettist, enginn þurfi að rökræða sig að niðurstöðu, enginn verði undir og enginn þurfi að bakka. Við Íslendingar eigum að vera stolt af því samfélagi sem forfeður okkar byggðu upp af dugnaði og eljusemi.

Við eigum að vera stolt af þeim auðlindum sem við nýtum, hvort sem það eru fiskistofnar lögsögunnar, jarðirnar sem bændur, vörslumenn landsins erja, bláir akrar fjarða landsins, fallvötnin eða þau óteljandi tækifæri sem við stöndum frammi fyrir með því hugviti sem í þjóðinni býr. Við eigum að styðja við atvinnulífið með hóflegum sköttum og skynsamlegu regluverki.

Öflugt velferðarsamfélag getur ekki þrifist án öflugs atvinnulífs. Við eigum að verðlauna dugnað, á sama tíma og við styðjum við og verjum þá sem minnst mega sín í samfélaginu.

Heildarskattheimta er í dag með því hæsta sem þekkist á meðal vestrænna þjóða. Sú þróun hefur orðið á vakt Sjálfstæðisflokksins. Af þeirri leið verðum við að snúa, með það fyrir augum að auðvelda fyrirtækjum að vaxa og dafna og tryggja það að fjölskyldur landsins geti sjálfar varið sem mestu af sínu sjálfsaflafé. Í þessum efnum leggur flokksráðsfundurinn til: Tafarlausa lækkun á tryggingagjaldi, umfram þá takmörkuðu lækkun sem ríkisstjórnin hefur boðað.

Flokksráðsfundurinn skorar á ríki og sveitarfélög að grípa tafarlaust til aðgerða vegna slæmrar stöðu á húsnæðismarkaði og tryggja nægt lóðaframboð og að lóðaverð endurspegli raunkostnað.

Í komandi kjarasamningum er ljóst að lögð verður áhersla á nokkur atriði sem ríkisvaldið getur lagfært. Má þar nefna húsnæðismál og afnám verðtryggingar. Miðflokkurinn tekur undir áherslur verkalýðshreyfingarinnar varðandi þau atriði. Alger endurskoðun er nauðsynleg á framlögðum drögum heilbrigðisráðherra að heilbrigðisstefnu til ársins 2030 þar sem ekki er gert ráð fyrir öðru rekstrarformi en ríkisrekstri. Ásamt því að stefna allri þjónustu á einn stað.

Miðflokkurinn leggur til heildarendurskoðun á almannatryggingakerfinu. Mæta verður kröfum aldraðra um sanngjarna framfærslu. Öryrkjar, aldraðir, sem og aðrir eiga alltaf rétt á að búa við mannlega reisn. Okkur ber að koma til móts við þarfir hvers og eins. Mótuð verði raunhæf stefna í geðheilbrigðismálum, ljóst er að núverandi fyrirkomulag gagnast ekki þeim sem þurfa á geðheilbrigðisþjónustu að halda.

Miðflokkurinn ætlast til að orkunni og aflinu verði varið í uppbyggilega hluti, í verkefni sem skila okkur fram á veginn, í verkefni sem auka verðmætasköpun. Tökum höndum saman um uppbyggingu innviða, þar sem svo mikið vantar upp á. Sameinumst um hóflega yfirbyggingu hins opinbera. Tryggjum að það sem ríkið hefur úr að spila fari þangað sem þörfin er brýnust. Markmiðið á að vera að allir landsmenn hafi það betra á morgun en þeir hafa í dag. Fyrir þessa hluti stendur Miðflokkurinn. Við erum komin til að vera!


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652