Lögreglan á Norðurlandi eystra hefur nú til rannsóknar tvær alvarlegar líkamsárásir sem áttu sér stað seinnipartinn í gær
Önnur þeirra, er rannsökuð sem tilraun til manndráps þar sem hnífi var beitt eftir að áflog brutust út á milli tveggja manna á Geislagötu við útibú Arionbanka á Akureyri.
Vitni urðu að atburðinum og kölluðu til lögreglu. Gerandinn yfirgaf vettvang áður en lögreglan kom, en var handtekinn skömmu síðar.
Þolandi árásarinnar var fluttur á Sjúkrahús Akureyrar þar sem hann fór í aðgerð í gærkvöldi. Hann er ekki talinn í lífshættu, en málið er rannsakað sem tilraun til manndráps þar sem verknaðaraðferðin sem beitt var gefur tilefni til þess. Vitni voru yfirheyrð í gærkvöldi og húsleit framkvæmd á dvalarstað geranda, þar sem blóðugur hnífur fannst falinn.
Lögregla hefur þess að auki kallað eftir gögnum úr eftirlitsmyndavélakerfum í nærumhverfi brotavettvangs. Farið verður fram á gæsluvarðhald yfir manninum á grundvelli almannahagsmuna síðar í dag.
Hin líkamsárásin átti sér stað á milli tveggja starfsmanna í vistarverum PCC á Bakka við Húsavík seinnipart gærdagsins. Báðir voru fluttir með tveimur sjúkrabílum á Sjúkrahús Akureyrar í kjölfar hennar. Annar þeirra var handtekinn í gærkvöldi eftir aðhlynningu og rannsóknir á sjúkrahúsinu.
Hinn var lagður inn á sjúkrahúsið í gærkvöldi og eftir útskrift þaðan í dag var hann handtekinn einnig. Báðir mennirnir eru grunaðir um líkamsárás á hvorn annan, þar sem hættulegri verknaðaraðferð var beitt. Skýrslutökur af mönnunum eru fyrirhugaðar í dag. Ekki er búið að taka ákvarðanir um þvingunaraðgerðir á borð við gæsluvarðhald eða farbann.
Lögreglan getur ekki veitt frekari upplýsingar að svo komnu, en mun koma upplýsingum á framfæri síðar þegar rannsóknarhagsmunir leyfa og efni standa til.