Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir Guðmundi Benedikt Baldvinssyni, 55 ára. Í tilkynningu segir að ekkert sé vitað um ferðir Guðmundar frá því um klukkan 18 á föstudag.
Guðmundur er 170 til 175 sentimetrar á hæð, með gráblá augu og stutt, grásprengt hár. Hann er talinn klæddur í gallabuxur, svartan jakka eða úlpu og í svörtum skóm.
Lögregla biðu þá sem geta gefið upplýsingar um ferðir Guðmundar að hafa samband í síma 444-1000.