Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ráðherrabifreiðar verða rafvæddar

$
0
0

Ráðherrabifreiðar verða rafvæddar

 - mynd
Samkvæmt tillögu forsætisráðherra, sem samþykkt var í ríkisstjórn í morgun 6. nóvember, verða ráðherrabifreiðar rafvæddar. Er það í samræmi við loftslagsstefnu Stjórnarráðsins og aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum.Var samþykkt að hefja þegar undirbúning að útboðum í takt við þróun rafbíla á markaði hér á landi.
Stefnt er að því að skipta út öllum ráðherrabifreiðum á næstu árum með það að markmiði að þeim tíma liðnum verði allar ráðherrabifreiðar knúnar rafmagni.Þegar hafa verið settar upp rafhleðslustöðvar á bílastæði forsætisráðuneytis, fjármála- og efnahagsráðuneytis, umhverfis- og auðlindaráðuneytis, dómsmálaráðuneytis, samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytis og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis og stefnt er að uppsetningu slíkra stöðva á bílastæðum allra ráðuneyta á næstu mánuðum.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652