Seðlabankinn með stríðsyfirlýsingu gegn launþegum
Ein af aðal kröfum launþegahreyfinga á Íslandi hafa verið að vextir lækki og að verðtryggingin verði aflögð.
Húsnæðismál hafa einnig verið eitt af aðal málum í kjarabaráttunni og þar spila vextir heldur betur inn í sem eru þeir hæstu í þeim löndum sem að við berum okkur saman við.
Búast má við harðri gagnrýni á þetta útspil Seðlabankans, nú korter í kjarasamninga og fyrstur til þess að tjá sig um málið var Vilhjálmur Birgisson.
,,Þetta er nánst stíðsyfirlýsing og líkurnar á hörðum átökum á íslenskum vinnumarkaði hafa aukist umtalsvert eftir þessa ákvörðun Seðlabankans, enda er ein af okkar aðalkröfum að vextir á Íslandi lækki!” Segir Vilhjálmur Birgisson formaður Verkalýðsfélags Akraness um hækkun vaxta sem að við sögðum frá í morgun.
Vaxtaokur hjá íslenskum lánastofnunum – 25.5 milljóna kr. lán verður að 80.500.000 krónum