Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Uppfærð frétt af rútuslysinu á Suðurlandsvegi

$
0
0

Fjórir einstaklingar voru fluttir alvarlega slasaðir með þyrlu Landhelgisgæslunnar til Landspítala í Fossvogi undir kvöldmat í gær vegna rútuslyss á Suðurlandsvegi, skammt norðan við Fagurhólsmýri.

Af þessum fjórum eru þrír ennþá á gjörgæslu, en sá fjórði er nú á bráðalegudeild.

Sjúkrahús á Selfossi og Akureyri sinntu öðrum í hópnum, nema hvað þrír einstaklingar til viðbótar við þessa fjóra leituðu aðhlynningar á Landspítala í gærkvöldi, en voru útskrifaðir samdægurs. Hnökralaust samstarf var við alla viðbragðsaðila í gær og ber að þakka fyrir það.

Landspítali var settur á gult viðbúnaðarstig vegna slyssins. Upphaflega var talið að fleiri væru alvarlega slasaðir en raun bar síðan vitni um. Af því tilefni var leitað aðstoðar hjá sjúkrahúsum í Reykjanesbæ og á Akranesi og sjúklingar fluttir þaðan frá Landspítala til að skapa rýmd hér í borginni. Landspítali þakkar þessum aðilum sérstaklega gott samstarf og sömuleiðis jafnt sjúklingum sem aðstandendum þeirra. Allir sýndu stöðunni mikinn skilning.

The post Uppfærð frétt af rútuslysinu á Suðurlandsvegi appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652