Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

,,Með ólíkindum að Creditinfo verði við óskum þessara fyrirtækja sem brjóta lög og siðferði“

$
0
0

Creditinfo krafið um bætt vinnubrögð

( Fréttin er uppfærð kl.21.00 þar sem að borist hefur svar frá Creditinfo og hægt er að lesa það neðar)

 

Stjórn Neytendasamtakanna hefur samþykkt eftirfarandi ályktun:

Til Neytendasamtakanna hafa leitað margir sem eru á vanskilaskrá hjá Creditinfo einungis vegna smálána. Í kjölfarið hafa Neytendasamtökin upplýst Creditinfo að smálánafyrirtækin og innheimtuaðilar þeirra nota Creditinfo sem svipu til að fá fólk til að borga lán með ólöglegum vöxtum. Þá er með ólíkindum að Creditinfo verði við óskum þessara fyrirtækja sem brjóta lög og siðferði.

Neytendasamtökin gera eftirfarandi kröfur um breytta starfshætti Creditinfo:
1. Neytendasamtökin gera þá kröfu að Creditinfo setji engan á vanskilaskrá sem að neitar að greiða ólögleg lán. Sér í lagi þar sem Hákon Stefánsson, stjórnarmaður Creditinfo group hefur opinberlega skorað á fólk að greiða ekki þessi lán.
2. Neytendasamtökin gera þá kröfu að Creditinfo taki alla af vanskilaskrá sem hingað til hafa lent þar vegna ólöglegra smálána, og afmá ummerki um veru þeirra á skránni.
3. Neytendasamtökin gera þá kröfu að Creditinfo hætti að beita lántaka öfugri sönnunarbyrði. Það á ekki að líðast að einstaklingar, sem oft þekkja ekki rétt sinn og geta ekki borið hönd fyrir höfuð sér, þurfi að andmæla kröfum sem byggja á ólöglegum lánveitingum, ella lendi þeir á vanskilaskrá og dúsi þar í allt að fjögur ár.

Creditinfo hefur mikil völd yfir fjárhagsupplýsingum og fjárhagslegri framtíð fólks og þeim verður að fylgja samfélagsleg ábyrgð. Dómar hafa fallið um ólögmæti smálána, úrskurðir Neytendstofu eru skýrir og vilji löggjafans er skýr. Ólögleg smálán eiga ekki að líðast.

Það er stjórn Neytendasamtakanna ljóst að smálánafyrirtækin fá einungis starfað í skjóli fyrirtækja sem greiða götu þeirra. Þannig berst einstaklingum fjöldi smáskilaboða í gegnum símkerfið, auglýsingar frá smálánafyrirtækjum birtast í kvikmyndahúsum og í fjölmiðlum, innheimtufyrirtæki taka að sér að innheimta ólöglegar kröfur og smálánafyrirtækin nýta greiðslumiðlunarkerfi fjármálakerfisins. Til eigenda, stjórnenda og starfsmanna þessara fyrirtækja beinir stjórn Neytendasamtakanna þeim tilmælum að sýna samfélagslega ábyrgð og hætta að styðja við smálánafyrirtækin.

Við hvetjum félagsmenn og aðra sem lent hafa á vanskilaskrá Creditinfo vegna smálána að senda þeim beiðni um að láta taka sig af skránni og afmá öll ummerki um veru þar á creditinfo@creditinfo.is og setja ns@ns.is í cc.

Bréfið gæti litið svona út:
Til þess er málið varðar,
Ég lenti á vanskilaskrá vegna ólöglegra smálána. Vinsamlega takið mig af vanskilaskránni tafarlaust og afmáið öll ummerki um veru mína þar. 
Vinsamlega verðið við beiðni minni sem fyrst og eigi síðar en að 10 dögum liðnum. 
Virðingarfyllst,
Nafn. Xxxxx Xxxxx
Kennitala: xxxxxx-xxxx

Svar frá Creditinfo:
Hér fylgja efti skýrar relgur um vanskilaskránna sem Creditinfo fylgir og jafnframt er hér tilkynning frá félaginu, þar sem kemur fram að félagið hefur tekið ákvörðun um að skerpa á ferlum varðandi skráningu á vanskilum lána til að tryggja enn frekar að upplýsingar í vanskilaskrá séu réttmætar. Markmiðið er að koma í veg fyrir innheimtu á vöxtum og kostnaði við lántöku umfram lögbundið hámark samkvæmt lögum um neytendalán. Í ljósi vafa um lögmæti kostnaðar af tilteknum tegundum lána og sérstaklega þá fyrirætlan ráðherra að leggja fram frumvarp sem mun taka á þessum vanda telur Creditinfo að rétt sé að miða skráningu vanskila við höfuðstól þeirra lána sem bera kostnað umfram lögbundið hámark. 

·       Varðandi skráningar á vanskilaskrá þá er um að ræða kröfur frá opinberum aðilum og hins vegar frá áskrifendum, sem gera samninga við Creditinfo um innsendingu vanskilamála. Í starfsleyfi félagsins, sem gefið er út af Persónuvernd, kemur fram hvaða tegundir upplýsinga er heimilt að skrá.

·       Áskrifandi sem óskar skráningar skal ábyrgjast að honum sé ekki kunnugt um að skuldari hafi nokkrar réttmætar mótbárur gegn greiðslu skuldarinnar.

·       Tilkynning um fyrirhugaða skráningu er ávallt send til einstaklinga 17 dögum áður en til skráningar kemur. Í tilkynningunni er m.a. vikið að andmælarétti hins skráða. Þar er einstaklingum bent á þjónustuvefinn MittCreditinfo en þar geta þeir séð yfirlit yfir virkar skráningar á vanskilskrá en einnig fyrirhugaðar skráningar og gert athugasemdir við skráningar. 

·       Berist Creditinfo andmæli við skráningu eða fyrirhugaðri skráningu á kröfum sem ekki hafa verið staðfestar með opinberri réttargjörð, eru þær ávallt afskráðar. Hins vegar eru skráningar sem byggðar eru á opinberum upplýsingum, s.s. áritaðar stefnur, dómar og árangurslaus fjárnám, ekki afskráðar af vanskilaskrá við andmæli hins skráða, enda búið að staðfesta vanskil með opinberri réttargjörð.

·       Framangreint verklag er í samræmi við ákvæði í starfsleyfi félagsins, en vinnsla um umdeildar skuldir er óheimil ef skuldari hefur sannanlega komið andmælum við skuld á framfæri við kröfuhafa, greint honum frá ástæðu andmælanna og skuldin hefur ekki verið staðfest með aðfararhæfum dómi eða aðfararhæfri ákvörðun sýslumanns sem birt hefur verið í opinberri auglýsingu.

·       Berist Creditinfo andmæli við skráningu eða fyrirhugaðri skráningu á kröfum sem ekki hafa verið staðfestar með opinberri réttargjörð, eru þær ávallt afskráðar. Hins vegar eru skráningar sem byggðar eru á opinberum upplýsingum, s.s. áritaðar stefnur, dómar og árangurslaus fjárnám, ekki afskráðar af vanskilaskrá við andmæli hins skráða, enda búið að staðfesta vanskil með opinberri réttargjörð. Vanskil vegna smálána eru sjaldnast skráningar sem byggja á opinberum upplýsingum og því alltaf afskráðar andmæli einstaklingur skráningu.

·       Öllum andmælum við skráningum og vinnslu er svarað eigi síðar en að fjórtán dögum liðnum, sem eru þau tímamörk sem félaginu eru sett í starfsleyfi.

·       Berist Creditinfo athugasemd um að krafa sem hafi verið að fullu greidd sé enn á vanskilaskrá, óskar Creditinfo staðfestingar á uppgreiðslu kröfunnar frá kröfuhafa eða umboðsmanni hans og afskráir af vanskilaskrá.

·       Skv. Starfsleyfi er vinnsla um umdeildar skuldir óheimil ef skuldari hefur sannanlega komið andmælum við skuld á framfæri við kröfuhafa, greint honum frá ástæðu andmælanna og skuldin hefur ekki verið staðfest með aðfararhæfum dómi eða aðfararhæfri ákvörðun sýslumanns sem birt hefur verið í opinberri auglýsingu.

Árétting: Réttur einstaklinga/lántakanda varðandi skráningu á vanskilaskrá: 

Berist Creditinfo andmæli við skráningu eða fyrirhugaðri skráningu á kröfum sem ekki hafa verið staðfestar með opinberri réttargjörð, eru þær ávallt afskráðar. Hins vegar eru skráningar sem byggðar eru á opinberum upplýsingum, s.s. áritaðar stefnur, dómar og árangurslaus fjárnám, ekki afskráðar af vanskilaskrá við andmæli hins skráða, enda búið að staðfesta vanskil með opinberri réttargjörð. Vanskil vegna smálána eru sjaldnast skráningar sem byggja á opinberum upplýsingum og því alltaf afskráðar ef einstaklingur andmælir skráningu.

The post ,,Með ólíkindum að Creditinfo verði við óskum þessara fyrirtækja sem brjóta lög og siðferði“ appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652