Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Hraðakstursbrot 240 ökumanna voru mynduð

$
0
0

 

Brot 240 ökumanna voru mynduð á Sæbraut í Reykjavík frá mánudeginum 20. maí til miðvikudagsins 22. maí. Fylgst var með ökutækjum sem var ekið Sæbraut í vesturátt, á gatnamótum við Langholtsveg. Á tveimur sólarhringum fóru 17.760 ökutæki þessa akstursleið og því óku hlutfallslega mjög fáir ökumenn of hratt eða yfir afskiptahraða. Meðalhraði hinna brotlegu var 79 km/klst en þarna er 60 km hámarkshraði.

Sá sem hraðast ók mældist á 117. Tveimur ökutækjum var ekið gegn rauðu ljósi á umræddu tímabili.

Vöktun lögreglunnar á Sæbraut er liður í umferðareftirliti hennar á höfuðborgarsvæðinu.

The post Hraðakstursbrot 240 ökumanna voru mynduð appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652