Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Brunakerfi ráðhússins á Garðatorgi fór í gang

$
0
0

Slökkviliðið bjargar starfsmönnum sem voru fastir á 4. og 7. hæð turnsins á brunaæfingu 

Starfsmenn bæjarskrifstofanna héldu brunaæfingu í góða veðrinu í gær í samvinnu við Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins.

Brunakerfi ráðhússins á Garðatorgi fór í gang og starfsmenn áttu að fara út um næstu flóttaleið og á fyrirfram skilgreint söfnunarsvæði sem er á miðju Garðatorgi.

Slökkviliðið fékk einnig að æfa sig í að bjarga starfsmönnum sem voru fastir á 4. og 7. hæð turnsins, m.a. með reykköfunarbúnaði og körfulyftu eins og sjá má á meðfylgjandi myndum. Æfingin gekk mjög vel.

The post Brunakerfi ráðhússins á Garðatorgi fór í gang appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652