Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Vöru- og þjónustujöfnuður við útlönd jákvæður um 33,2 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2019

$
0
0

 

Samkvæmt bráðabirgðatölum var vöru- og þjónustujöfnuður á fyrsta ársfjórðungi 2019, eins og hann birtist í þjóðhagsreikningum og greiðslujöfnuði, jákvæður um 33,2 milljarða króna samanborið við 9,3 milljarða króna afgang á sama tíma árið 2018, á gengi hvors árs. Umreiknaður vöruskiptajöfnuður var hagstæður um 3,5 milljarða á meðan þjónustujöfnuður var hagstæður um 29,7 milljarða. Heildarútflutningstekjur á fyrsta ársfjórðungi 2019, vegna vöru- og þjónustuviðskipta, námu 308,4 milljörðum króna en heildarinnflutningur á vörum og þjónustu nam 275,2 milljörðum króna.

Samhliða ársfjórðungsútgáfu á vöruviðskipta- og þjónustujöfnuði uppfærir Hagstofan gögn um mánaðarlegan vöruviðskipta- og þjónustujöfnuð á fyrsta ársfjórðungi 2019. Í mars var áætlað verðmæti útflutnings fyrir vöru- og þjónustuviðskipti 100,1 milljarður en áætlað verðmæti innflutnings vöru- og þjónustuviðskipta 97,4 milljarðar. Vöru og þjónustujöfnuður er því áætlaður jákvæður um 2,7 milljarða í mars 2019.

Þessar upplýsingar koma fram í brúartöflum á vef Hagstofunnar sem samræma staðla vöruviðskipta og greiðslujafnaðar.

Verðmæti útflutnings og innflutnings í janúar til mars 2018 og 2019
Millj. kr. á gengi hvors árs Breytingar frá fyrra
ári á gengi hvors árs, %
% jan-mar
Mars Janúar-Mars
2018 2019 2018 2019
Vöru- og þjónustuviðskipti, útflutningur alls 92.239,3 100.133,2 272.360,1 308.372,6 13,2
Vöruskipti: = Útflutningur í greiðslujöfnuði 44.249,7 53.612,4 140.545,9 176.671,1 25,7
Þjónustuviðskipti: = Útflutt þjónusta 47.989,7 46.520,8 131.814,2 131.701,5 -0,1
Vöru- og þjónustuviðskipti, innflutningur alls 90.853,9 97.386,8 263.013,0 275.168,9 4,6
Vöruskipti: = Innflutningur í greiðslujöfnuði 56.672,0 61.471,7 167.749,1 173.181,4 3,2
Þjónustuviðskipti: = Innflutt þjónusta 34.181,8 35.915,0 95.264,0 101.987,5 7,1
Vöru- og þjónustujöfnuður í greiðslujöfnuði 1.385,5 2.746,5 9.347,0 33.203,7

Talnaefni

The post Vöru- og þjónustujöfnuður við útlönd jákvæður um 33,2 milljarða á fyrsta ársfjórðungi 2019 appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652