Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Spáð yfir 20 stiga hita í dag – Varað við gróðureldum

$
0
0

 

Þoka hefur verið viðloðandi landið í nótt en búast má við að henni létti víðast hvar þegar líður á morguninn. Enn er mikið hæðarsvæði á milli Íslands og Grænlands og líklegt að hitastigi nái yfir 20 gráður í innsveitum á Vesturlandi og uppsveitum Suðurlands í dag en austantil er áfram nokkuð skýjað og heldur svalara í veðri.
Ekki er útlit fyrir úrkomu á vestanverðu landinu næstu daga og því áfram brýnt að fara varlega með eld vegna hættu á gróðureldum. Þetta kemur fram hjá Veðurstofu Íslands.

Veðurhorfur á landinu

Yfir Grænlandi er víðáttumikil 1036 mb hæð sem teygir sig til suðurs suður fyrir Ísland. Á Norðursjó er vaxandi 1001 mb lægð á leið norðvestur.

Norðlæg átt, 5-13, hvassast á annesjum austanlands en snýst smám saman í suðaustlæga átt, 5-10 syðst. Hvassari norðlæg átt austan og suðaustanlands á morgun. Víða þokuloft vestantil í fyrstu, annars skýjað með köflum eða bjartviðri en dálítil súld eða rigning norðan og austanlands. Hiti 7 til 14 stig norðaustantil, en annars 14 til 23 stig, hlýjast á Suðurlandi. Spá gerð: 13.06.2019 05:37. Gildir til: 14.06.2019 00:00.

Veðurhorfur á landinu næstu daga
Á föstudag:
Norðaustan 5-10 m/s, en 10-15 suðaustantil á landinu. Bjart með köflum, en skýjað austanlands. Hiti frá 7 stigum með austurströndinni, en allt að 20 stig í uppsveitum á Suður- og Vesturlandi.

Á laugardag:
Austan 5-10 m/s. Dálítil rigning suðaustanlands. Bjart með köflum á vesturhelmingi landsins, en líkur á skúrum síðdegis. Hiti frá 8 stigum austast, upp í 19 stig á Vesturlandi.

Á sunnudag:
Hæg austlæg átt og víða skýjað, en bjart veður suðvestantil á landinu. Hiti 12 til 18 stig, en svalara austanlands og á annesjum fyrir norðan.

Á mánudag (lýðveldisdagurinn):
Norðan 3-8 og dálítil rigning með köflum, en léttskýjað vestantil á landinu. Hiti 10 til 18 stig yfir daginn.

Á þriðjudag og miðvikudag:
Útlit fyrir austlæg átt og dálitil rigning með köflum, en yfirleitt þurrt norðanlands. Hiti breytist lítið.
Spá gerð: 12.06.2019 21:56. Gildir til: 19.06.2019 12:00.

The post Spáð yfir 20 stiga hita í dag – Varað við gróðureldum appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652