Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Tæplega 4 af hverjum 10 styðja ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

$
0
0

 

Miðflokk­ur­inn mæl­ist með 9,8% fylgi í nýrri skoðana­könn­un sem Frétta­blaðið lét vinna fyrir sig. En það er aukn­ing um heil þrjú pró­sent frá síðustu könn­un blaðsins og er Miðflokkurinn þar með kominn nálægt kjörfylgi sínu. Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn tap­ar rúm­um tveim­ur pró­sent­um og er með 7,1 pró­senta fylgi.

Tæplega 4 af hverjum 10 styðja ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur

39,7 prósent segjast ekki styðja ríkisstjórnina og um 34,6 prósent segjast styðja hana. Talsvert fleiri segjast ekki vita hvort þeir styðji stjórnina frá síðustu könnun, eða 23,1 prósent en það er hækkun um tæp sjö prósentustig.

Vinstri græn mæl­ast nú með 13,1 pró­sent en voru með 10,2 pró­sent í síðustu könn­un. Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn fer úr 24,2 pró­sent­um niður í 22,6. Pírat­ar bæta við sig rúm­um tveim­ur pró­sent­um frá síðustu könn­un og fara úr 13 pró­sent­um upp í 15,2 pró­sent og er stærsti flokk­ur­inn í stjórn­ar­and­stöðu og með næst­mest fylgi flokka á eft­ir Sjálf­stæðis­flokkn­um.

Sam­fylk­ing­in, sem var með 17,4 pró­sent í síðustu könn­un, tap­ar hins veg­ar þrem­ur pró­sent­um og fer niður í 14,1 pró­sent. Fylgi Viðreisn­ar er hins veg­ar stöðugt milli kann­ana, Var 9,9 pró­sent í síðustu könn­un og er nú 9,7 pró­sent. Flokk­ur fólks­ins tap­ar einu pró­senti milli kann­ana og fer úr 5,3 pró­sent­um í 4,3 pró­sent.

Könnunin var gerð dagana 25.-27. júní og var send á 2000 manna könnunarhóp Zenter rannsókna, átján ára og eldri. Svarhlutfallið var 51 prósent.

Sjá nán­ar í Frétta­blaðinu í dag

The post Tæplega 4 af hverjum 10 styðja ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652