Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Nafn starfsmanns Vegagerðarinnar sem lést

$
0
0

 

Maðurinn sem lést af slysförum þann 27. júní síðastliðinn þegar veghefill fór út af veginum upp á Ingjaldssandsvegi, Sandsheiði í Gerðhamarsdal, á Vestfjörðum hét Guðmundur S. Ásgeirsson. Hann var 57 ára gamall ekkjumaður.

Hann lætur eftir sig þrjá uppkomna syni, tvær tengdadætur og þrjú barnabörn að því er fram kemur í tilkynningu frá lögreglunni á Vestfjörðum.

Synir hins látna vilja koma á framfæri þökkum til samstarfsmanna föður þeirra hjá Vegagerðinni sem og öllum viðbragðsaðilum sem komu að atvikinu.

The post Nafn starfsmanns Vegagerðarinnar sem lést appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652