Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Lögreglan lýsir eftir svörtum Volkswagen Polo (GJT-69)

$
0
0

 

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir svörtum Volkswagen Polo með skráningarnúmerið GJT69, en bílnum var stolið í Asparhvarfi í Kópavogi um síðustu helgi.

Sjáist bíllinn í umferðinni skal hringja tafarlaust í 112, en upplýsingum um hvar bíllinn er niðurkominn má sömuleiðis koma á framfæri í tölvupósti á netfangið eirikurb@lrh.is eða í einkaskilaboðum á fésbókarsíðu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Meðfylgjandi er mynd af samskonar bíl og lýst er eftir.

The post Lögreglan lýsir eftir svörtum Volkswagen Polo (GJT-69) appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652