Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

14% Íslendinga telja sig hafa verið bitna af lúsmýi í sumar

$
0
0

 

Um 14% fullorðinna Íslendinga telja sig hafa verið bitna af lúsmýi á Íslandi í sumar *

Nær tvöfalt fleiri íbúar höfuðborgarsvæðisins en landsbyggðarinnar telja sig hafa verið bitna af lúsmýi í sumar, eða tæplega 17% Reykvíkinga á móti rúmlega 9% íbúa
landsbyggðarinnar.

Við nánari skoðun á búsetu þeirra sem telja sig hafa verið bitna af lúsmýi í sumar má sjá að hlutfallið er hæst meðal þeirra sem búa í Reykjavík, Suðvesturkjördæmi og Suðurkjördæmi. Um helmingi færri íbúar Norðvesturkjördæmis segjast hafa verið bitnir og hlutfallið er langlægst meðal íbúa Norðausturkjördæmis.

*Rúmlega 2% þátttakenda tóku ekki afstöðu og eru hlutföll reiknuð út frá þeim sem tóku afstöðu.
Spurt var:
Telur þú þig hafa verið bitna/bitinn af lúsmýi á Íslandi í sumar?
Þjóðarpúls Gallup Júlí 2019

Niðurstöður sem hér birtast eru úr netkönnun sem Gallup gerði dagana 27. júní til 11. júlí 2019. Heildarúrtaksstærð var 1.764 og þátttökuhlutfall var 47,4%.

Einstaklingar í úrtaki voru handahófsvaldir úr Viðhorfahópi Gallup.
Já 14,1%  /  Nei 85,9%

The post 14% Íslendinga telja sig hafa verið bitna af lúsmýi í sumar appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652