Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Vopnaleit á Alþingi er Orkupakki var samþykktur gegn vilja þjóðarinnar

$
0
0

 

Vopnaleit var gerð með sérstöku tæki og allir þurftu að ganga í gegnum öryggishlið eins og á flugvöllum

Einungis 25 manns var hleypt inn á þingpalla Alþingis í dag, tveir og tveir fengu að fara inn í einu og þurftu að skilja eftir síma í hólfi og úlpur á slá. Að því loknu var framkvæmd vopnaleit á hverjum einasta gesti Alþingis.

Þá voru bæði lögreglumenn og verðir á þingpalli sem tóku á móti gestum og sussað var á gesti ef að þeir svo mikið sem skelltu upp úr. En starfsmenn Alþingis voru kurteisir og yfirvegaðir sem og lögregla og vinsamlegir við gesti sem sumir hverjir áttu erfitt með að hemja tilfinningar sínar við atkvæðagreiðsluna. Gestir sem höfðu ekki komið fyrr á þingpalla, höfðu orð á því að þeir undruðust þennan viðbúnað.

Atkvæðagreiðslan fór þannig að 46 sögðu já við Orkupakka ESB og 13 sögðu nei, fjórir voru fjarverandi. Um mikið hitamál er að ræða eins og öllum ætti að vera ljóst og þingmenn Miðflokksins sögðu það oftar en einu sinni að verið væri að framkvæma gjörning sem að væri gegn vilja þjóðarinnar. Allar kannanir hafi sýnt það að meirihluti þjóðarinnar er á móti Orkuppakka ESB, og innan allra flokka. Hópurinn Orkan okkar, baráttuhópur, birti mynd á síðu sinni um það hvernig atkvæðagreiðslan fór ásamt myndum af þingmönnum:

 

 

The post Vopnaleit á Alþingi er Orkupakki var samþykktur gegn vilja þjóðarinnar appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652