,,Allnokkir ökumenn voru staðnir að hraðakstri á Suðurlandsvegi, við Sandskeið, þegar lögreglan var þar við hraðamælingar í dag. Sá sem hraðast ók mældist á 151 km hraða, en þar var um að ræða erlendan karlmann um fimmtugt, sem var á ferðalagi með börnum sínum.“ Segir lögreglan á Höfuðborgarsvæðinu.
Maðurinn borgaði sektina, kr. 157.500, möglunarlaust og bar því við, spurður um þennan glórulausa ökuhraða, að hann taldi sig vera að aka á hraðbraut! Flestir hinna, sem lögreglan stöðvaði, óku þarna á 120-130 km hraða og var um helmingur þeirra erlendir ferðamenn, en hinir íslenskir ökumenn, sem voru líka að flýta þér þessi lifandis ósköp.“
The post Borgaði 157.500 kr. sekt, möglunarlaust appeared first on Fréttatíminn.