Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fékk 42 milljónir – Frábær brúðkaupsgjöf

$
0
0

 

Frábær brúðkaupsgjöf

Karlmaður af Austurlandi gerði sér sérstaka ferð í höfuðborgina eftir síðustu helgi og var erindið að heimsækja Íslenska getspá og afhenda þeim vinningsmiða frá því á laugardaginn.  Hann og kona hans duttu nefnilega í þennan dásamlega lukkupott sem svo marga dreymir um að lenda í, þau tóku þátt í Lottóinu, voru alein með allar tölurnar réttar og fengu allan 4-falda pottinn og unnu rúmar 42 milljónir. 

„Þetta kemur afar sér vel“ sagði vinningshafinn í sæluvímu og svo er þetta frábær brúðkaupsgjöf fyrir þau hjónin sem héldu upp á rúmlega 40 ára brúðkaupsafmæli um helgina.

Miðann góða höfðu þau keypt í Olís á Reyðarfirði, skruppu þangað til að fá sér eina með öllu og gripu Lottóið í leiðinni – heppilegt fyrir þau!

Starfsfólk Getspár/Getrauna óskar vinningshafanum innilega til hamingju og þakkar um leið veittan stuðning sem skiptir gríðarlega miklu máli fyrir öryrkja, íþrótta- og ungmennafélögin í landinu þar sem þau njóta góðs af sölu Lottós.

 

The post Fékk 42 milljónir – Frábær brúðkaupsgjöf appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652