Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

F-35 sprengjuþota lenti á Akureyrarflugvelli

$
0
0

 

Laust eftir klukkan eitt í dag lenti F-35 sprengjuþota ítalska flughersins á Akureyrarflugvelli af öryggisástæðum.

Tvær F-35 sprengjuþotur að skjóta sprengjum

Herþotan var í æfingaflugi en loftrýmisgæsla Atlantshafsbandalagsins hefst í næstu viku. TF-GRO, þyrla Landhelgisgæslunnar, var kölluð út til að flytja liðsmenn ítalska flughersins norður til að kanna ástand vélarinnar.

Með í för eru einnig tveir liðsmenn séraðgerðasviðs Landhelgisgæslunnar og tveir frá sérsveit ríkislögreglustjóra til að annast öryggisgæslu umhverfis vélina. TF-GRO tók á loft frá Reykjavíkurflugvelli um klukkan 14:00.

The post F-35 sprengjuþota lenti á Akureyrarflugvelli appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652