Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Kvótakerfið opið fyrir ESB ríkin –Útlendingar mega fá úthlutaðan fiskveiðikvóta

$
0
0

 

Staðfest hefur verið að allir borgarar ESB ríkjanna geti sótt um fiskveiðikvóta í Noregi á grundvelli EES samningsins, þetta staðfestir bæði utanríkisráðherra Noregs og Fiskistofan þar í landi

Á ársfundi um sjávarútvegsmál í Bodø í Norður Noregi kom þetta fram nýlega, þ.e. að allir ríkisborgarar í ESB ríkjunum gætu sótt um fiskveiðikvóta í Noregi og útlendingar ef þeir væru búsettir þar.  Þá geti þessir aðilar einnig sótt um sérstakan nýliðunarkvóta á báta sem eru undir 15 metrum sem þeir hafa heimild til þess að eiga í Noregi. En mjög mikið tillit er tekið til nýrra aðila í útgerð í Noregi og fá sumir þeirra úthlutaðan sérstökum fiskveiðikvóta gefins frá ríkinu til þess að hefja útgerð.

Þá fá bátar undir 15 metrum að veiða þorsk án kvóta, ár hvert, á ákveðnum svæðum og ýsa og ufsi eru ekki kvótasett í öllum tilvikum heldur. En vísindaleg og fagleg fiskveiðistjórnun í Noregi hefur skilað sér í mjög miklum og auknum afla ár eftir ár. Á meðan ekkert hefur gengið að auka veiðar á Íslandi þau 30 ár sem hið umdeilda kvótakerfi var sett á hér á landi.

Íslenskar veiðiheimildir verði að kvóta fyrir ESB ríkin

17 ára og keypti sér bát og kominn í blómlega útgerð

 

 

The post Kvótakerfið opið fyrir ESB ríkin – Útlendingar mega fá úthlutaðan fiskveiðikvóta appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652