Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Rannsókn á bruna

$
0
0

Rannsókn Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á bruna í íbúð fjölbýlishúss í Suðurhólum í Reykjavík í gærkvöld er lokið, en hún leiddi í ljós að eldurinn kviknaði út frá potti á eldavél.

Mikill reykur var á vettvangi þegar viðbragðsaðilar komu á staðinn, en húsráðendur voru ekki í íbúðinni þegar eldurinn kom upp. Vel gekk að rýma aðrar íbúðir í stigaganginum, en íbúðin þar sem eldurinn kom upp er mikið skemmd. Einn var fluttur á slysadeild.

The post Rannsókn á bruna appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652