Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Mýs og silfurskottur í eldhúsi skóla í Garðabæ

$
0
0

 

Ítrekað orðið vart við meindýr, svo sem mýs og silfurskottur

Eldhúsi starfsmanna Garðaskóla í Garðabæ hefur verið lokað og verður það um ótiltekinn tíma vegna athugasemda heilbrigðiseftirlits. Í bréfi starfsmanna til bæjaryfirvalda, þar sem krafist er úrbóta, kemur fram að ítrekað hafi orðið vart við meindýr, svo sem mýs og silfurskottur.

Gunnar Einarsson bæjarstjóri segir að lagt hafi verið í verulegar framkvæmdir við Garðaskóla á undanförnum árum í góðu samstarfi við stjórnendur skólans. Unnið verði úr ábendingum starfsmanna í góðu samstarfi við stjórnendur og starfsfólk.

The post Mýs og silfurskottur í eldhúsi skóla í Garðabæ appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652