Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Tekjur af erlendum ferðamönnum lækkuðu um 9 milljarða, eða um 7%

$
0
0

 

Tekjur af erlendum ferðamönnum á 2. ársfjórðungi námu 119 milljörðum króna og lækkuðu þær um tæpa 9 milljarða, eða um 7%, samanborið við sama ársfjórðung árið áður. Lækkunina má eingöngu rekja til flugreksturs þar sem tekjur drógust saman um 20%, samanborið við 2. ársfjórðung 2018. Að öðru leyti var önnur neysla erlendra ferðamanna á sama tímabili svo til óbreytt.

Flughreyfingum á Keflavíkurflugvelli fækkaði um 11% í september 2019, samanborið við sama mánuð í fyrra. Farþegahreyfingum fækkaði umtalsvert á sama tímabili, úr 982 þúsund í september 2018 í 646 þúsund í september í ár, og munar þar mest um fækkun skiptifarþega, en þeim fækkaði um 57%. Á sama tímabili fækkaði komufarþegum um 17% og brottfararfarþegum um 18%. Séu síðustu 12 mánuðir bornir saman við sama tímabil árið áður, hefur komu- og brottfararfarþegum fækkað um 8%.

Fjöldi launþega í einkennandi greinum ferðaþjónustu dróst saman um 8% í ágúst samanborið við sama mánuð síðasta árs. Mest var fækkun launþega í farþegaflutningum með flugi þar sem fjöldi launþega dróst saman um 20% og lækkaði úr 5.900 í ágúst 2018 í 4.700 í ágúst síðastliðnum. Einnig fækkaði launþegum í veitingasölu- og þjónustu um 8% á sama tímabili, úr 11.000 í 10.100 launþega.

Í þessari útgáfu skammtímahagvísa ferðaþjónustu eru birtar uppfærðar tölur um gistinætur, tekjur af erlendum ferðamönnum og launþegum í einkennandi greinum ferðaþjónustu. Auk þess eru birtar uppfærðar tölur um bílaleigubíla frá Samgöngustofu, umferðatölur frá Vegagerðinni,talningu farþega til landsins samkvæmt talningu Ferðamálastofu auk talna um farþega- og flughreyfingar frá ISAVIA. Ekki eru birtar tölur um áætlaðan ferðamannafjölda í gegnum Keflavíkurflugvöll að þessu sinni þar sem verið er að endurskoða aðferðafræði tengda ferðamannafjölda.

Skammtímahagvísar ferðaþjónustu Ágúst September – ágúst
Gistinætur 2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Gistinætur alls 1.661.608 1.597.030 -4% 10.686.798 10.594.090 -1%
Hótel & gistiheimili 716.052 711.831 -1% 5.719.052 5.786.109 + 1%
Gisting greidd gegnum vefsíður (t.d. Airbnb) 288.000 240.000 -17% 1.804.000 1.690.000 -6%
Óskráðar gistinætur (bíla- og innigisting) 97.000 79.000 -19% 528.900 472.000 -11%
Aðrar tegundir skráðra gististaða1 560.556 566.199 + 1% 2.634.846 2.645.981 + 0%
Ágúst September – ágúst
Framboð og nýting hótelherbergja 2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Gistinætur 504.455 513.367 + 2% 4.390.808 4.412.865 + 1%
Framboð hótelherbergja 10.438 10.997 + 5% 116.902 123.932 + 6%
Nýting 85% 83% -2 69% 65% -4
2. ársfjórðungur 3. ársfjórðungur – 2. ársfjórðungs
Þjónustujöfnuður (milljónir króna) 2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Tekjur af erlendum ferðamönnum 127.876 119.032 -7% 506.028 509.571 + 1%
– Flug 45.287 36.321 -20% 179.596 167.359 -7%
– Neysla / Ferðalög 82.589 82.711 + 0% 326.660 341.856 + 5%
Maí – júní Júlí – júní
Virðisaukaskattskyld velta2 2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Velta alls (milljónir króna) 128.451 111.242 -13% 665.607 643.512 -3%
– Rekstur gististaða 17.742 17.768 + 0% 95.754 98.144 + 2%
– Farþegaflutningar með flugi 58.405 41.314 -29% 288.016 251.606 -13%
– Veitingasala- og þjónusta 17.385 17.358 0% 97.931 99.190 + 1%
– Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis) 3.296 2.942 -11% 15.757 16.502 + 5%
– Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi) 17.093 17.435 + 2% 89.511 98.772 + 10%
– Bílaleigur 9.598 9.794 + 2% 50.190 51.064 + 2%
– Farþegaflutningar á landi 3.729 3.430 -8% 22.950 22.881 0%
– Farþegaflutningar á sjó, vötnum og ám 1.204 1.201 0% 5.499 5.353 -3%
Ágúst Meðalfjöldi launþega september – ágúst
Launþegar3 2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Launþegar alls 32.100 29.400 -8% 28.800 27.783 -4%
– Farþegaflutningar með flugi 5.900 4.700 -20% 5.083 4.883 -4%
– Rekstur gististaða 8.300 7.900 -5% 6.792 6.683 -2%
– Veitingasala og -þjónusta 11.000 10.100 -8% 10.833 10.283 -5%
– Ferðaskrifstofur og ferðaskipuleggjendur 4.500 4.400 -2% 3.808 3.883 + 2%
– Aðrar atvinnugreinar tengdar ferðaþjónustu 3.100 2.800 -10% 2.842 2.683 -6%
Október Meðalfjöldi nóvember – október
Bílaleigubílar4 2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Bílaleigubílar alls 26.404 24.994 -5% 23.007 23.082 + 0%
Bílaleigubílar í umferð 25.699 24.075 -6% 25.016 24.934 0%
Bílaleigubílar úr umferð 705 919 + 30% 2.009 1.852 -8%
September Október – september
Umferð á hringveginum5 2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Suðurland 18.343 16.781 -9% 178.470 178.937 + 0%
Vesturland 15.638 15.906 + 2% 162.696 172.771 + 6%
Norðurland 10.825 10.598 -2% 102.939 103.306 + 0%
Austurland 3.191 3.072 -4% 27.411 27.068 -1%
September Október – september
Talning farþega úr landi 2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Farþegar í gegnum Keflavíkurflugvöll5 289.502 233.357 -19% 2.950.421 2.684.150 -9%
– Erlent ríkisfang 231.681 183.654 -21% 2.290.811 2.053.499 -10%
– Þar af áætlaðir ferðamenn7 .. .. .. ..
– Íslenskt ríkisfang 57.821 49.703 -14% 659.610 630.651 -4%
September Október – september
Umferð í gegnum Keflavíkurflugvöll 2018 2019 % 2017-2018 2018-2019 %
Heildarfjöldi flughreyfinga (komur/brottfarir) 8.191 7.293 -11% 98.635 88.312 -10%
Heildarfarþegahreyfingar8 982.828 646.415 -34% 8.668.594 7.887.792 -9%
– Brottfarir 290.249 238.532 -18% 2.938.502 2.705.266 -8%
– Komur 269.986 223.617 -17% 2.934.901 2.703.286 -8%
– Skiptifarþegar (Skiptifarþegar eru taldir tvisvar) 422.593 182.154 -57% 3.777.446 2.472.255 -35%

Tafla á PDF

1 Aðrar tegundir skráðra gististaða eru tjaldsvæði, farfuglaheimili, orlofshús, skálar í óbyggðum, íbúðagisting, svefnpokagististaðir og heimagististaðir
2 Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (erlendis): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög erlendis, þ.e. er undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988). Ferðaskrifstofur og skipuleggjendur (á Íslandi): Þjónusta sem veitt er í sambandi við ferðalög á Íslandi, þ.e. er ekki undanþegin virðisaukaskatti skv. 12. grein laga um virðisaukaskatt (nr. 50/1988).
3 Tölur námundaðar að næsta hundraði
4 Skv. gögnum frá Samgöngustofu
5 Skv. talningu frá Vegagerðinni í gegnum 14 lykilteljara á hringveginum. Mánaðartölur sýna meðalfjölda talninga á dag í hverjum mánuði. Árstímabil sýnir heildartalningar yfir árið
6 Skv. talningu frá Ferðamálastofu
7 Verið er að endurskoða aðferðafræði við útreikning á ferðamönnum til landsins
8 Farþegahreyfingar telja brottfarir, komur og skiptifarþega sem eru tvítaldir

Talnaefni
Hagvísar í ferðaþjónustu
Þjónustujöfnuður
Tekjur af erlendum ferðamönnum

The post Tekjur af erlendum ferðamönnum lækkuðu um 9 milljarða, eða um 7% appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652