Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fallegar sögur um aukin lífsgæði

$
0
0

 

Drífa Snædal formaður ASÍ

Það er sannkölluð gósentíð í grasrótarstarfi verkalýðshreyfingarinnar um þessar mundir. Þing landssambands Verslunarmanna stendur nú yfir á Akureyri og Starfsgreinasambandið, landssamband verkafólks, heldur sitt þing í næstu viku. Að auki hef ég haft ánægju af að hitta félagsmenn Einingar-Iðju á Akureyri og Eflingar í Reyjavík í vikunni.

Formannafundur Alþýðusambandsins fór svo fram á miðvikudaginn en þar var tekin staðan í þeim fjölmörgu verkefnum sem kjarasamningarnir frá því í vor fólu okkur. Samtals eru þetta hundruð fulltrúa, trúnaðarmanna á vinnustöðum, almennra félagsmanna og kjörinna fulltrúa sem eru í stöðugu og lifandi samtali um hreyfinguna okkar, brýnustu úrlausnarefnin og framtíðarsýn. Hjartsláttur fjöldahreyfingar vinnandi fólks er nánast áþreifanlegur í vikum eins og þessari.

Ég hef tekið þátt í mjög fjörugum umræðum um húsnæðismál, fengið hörmungarsögur frá fólki en líka fallegar sögur um stórkostlega aukin lífsgæði þar sem fólk fer úr ómögulegu, dýru og þröngu húsnæði í skjól leiguíbúða reknum af hreyfingunni sjálfri í gegnum Bjarg íbúðafélag. Það er fátt sem eykur lífsgæði eins og úrlausn húsnæðismála. Þá erum við ekki bara að tala um fólkið sjálft sem kemst í öruggt og viðunandi húsnæði heldur líka foreldra sem losna við börnin að heiman og þau lífsgæði að vita af afkomendum í öruggu skjóli.

Stytting vinnuvikunnar hefur líka verið mjög til umfjöllunar í samhengi við þær kjaraviðræður sem nú standa yfir á opinbera vinnumarkaðnum. Ég er þess fullviss að við séum lögð af stað í vegferð þar sem krafan um styttri vinnuviku verður sífellt háværari. Þau sem hafa reynt á eigin skinni hvað til þess að gera lítil stytting gefur mikil gæði eru heitustu talsmenn þessa verkefnis. Það verður spennandi að fylgjast með auknum þunga í umræðunni eftir því sem samningar um styttingu á almenna vinnumarkaðnum komast til framkvæmda og vonandi verða tekin góð skref í þessa átt í opinberu samningunum líka. Undiraldan er sterk og fer vaxandi.

Njótið helgarinnar,
Drífa

The post Fallegar sögur um aukin lífsgæði appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652