Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Líkamsárás – gæsluvarðhald til 25. október

$
0
0

 

Karlmaður um tvítugt var um helgina í Héraðsdómi Reykjavíkur úrskurðaður í sex daga gæsluvarðhald, eða til 25. október, á grundvelli rannsóknarhagsmuna að kröfu Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í þágu rannsóknar hennar á alvarlegri líkamsárás.

Tilkynning um málið barst lögreglu aðfaranótt laugardags og var maðurinn handtekinn á vettvangi miðsvæðis í borginni. Árásarþoli, ung kona, var fluttur á slysadeild. Rannsókn málsins miðar vel.

Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.

The post Líkamsárás – gæsluvarðhald til 25. október appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652