Vistbyggðarráð stendur fyrir göngutúr í Reykjavík næstkomandi miðvikudag, 23. september, frá klukkan 15-16, með yfirskriftinni Vistvænar byggingar, fólk og náttúra, þar sem stoppað verður á nokkrum áhugaverðum stöðum og fræðst um vistvænar lausnir í byggð.
Lagt verður af stað frá umferðamiðstöð BSÍ og helstu áfangastaðir verða Landspítalinn þar sem samgöngu- og umhverfisstefna spítalans verður kynnt. Þaðan verður gengið eða tekinn strætó á Suðurgötu þar sem Hús íslenskra fræða og Stofnun Vigdísar Finnbogadóttur munu standa. Báðar þessar byggingar eru hannaðar með aðferðafræði vistvænnar hönnunar að leiðarljósi og er stefnt að því að þær verði vottaðar.
Gangan endar í Norræna húsinu en þar verður fræðst um verðlaunahönnun Landmótunar á Vatnsmýrinni við Norræna húsið. Reiknað er með að ferðin taki um klukkutíma og eru allir velkomnir að koma með og taka þátt í umræðunni um vistvæna þróun byggðar.
The post Vistvænn göngutúr í miðbænum appeared first on Fréttatíminn.