Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

2000 leikir seldir á kvöldopnun

$
0
0

Ungmenni á öllum aldri hafa beðið í nokkra mánuði með mikilli eftirvæntingu eftir nýjustu útgáfu tölvuleiksins FIFA.

FIFA 16 kom í búðir formlega í dag, en í gær var sérstök kvöldopnun í ELKO í Bæjarlind þar sem á annað þúsund viðskiptavinir mynduðu röð langt út á gangstétt verslunarinnar.

Leikurinn, sem er sá allra vinsælasti í heiminum í dag rann út eins og heitar lummur og athygli vakti að viðskiptavinirnir voru á öllum aldri. Ungir sem aldnir, ungir í anda.

Margir vonuðust til þess að íslenska landsliðið væri meðal keppnisþjóða í leiknum, en svo er ekki. Það er þó búið að gefa út að það verði í boði í leiknum sem kemur út um haustið 2017. Allir íslensku landsliðsmennirnir eru þó í sínum liðum og eru framfarir þeirra í leiknum í samræmi við gengi landsliðsins á undanförnum mánuðum. Ólafur Jóelsson hjá Senu segir að um 2000 leikir hafi selst á opnunarkvöldinu í gær og að vinsældirnar séu að aukast á milli ára.

Nýjung í þessum leik er að hægt er að velja kvennalandslið.

Leikurinn er fáanlegur í verslunum ELKO

elkoelko2elko3elko4

 

The post 2000 leikir seldir á kvöldopnun appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652