Landsliðsmarkvörðurinn Ögmundur Kristinsson hafði ákveðið fyrir all nokkru að kvænast unnustu sinni Söndru Steinarsdóttur í byrjun júlí á næsta ári. Þegar íslenska landsliðið í knattspyrnu tryggði sér þátttökurétt á Evrópumeistaramótinu, sem fram fer í Frakklandi í júní og júlí á næsta ári, þurftu þau Ögmundur og Sandra að hugsa dæmið upp á nýtt. Ögmundur segist aldrei vera viss hvort hann verði í hópnum í Frakklandi en vildi samt baktryggja sig og hefur parið því flýtt brúðkaupinu.
„Við ákváðum þetta fyrir svo löngu síðan að við vorum ekki farin að pæla í þessum möguleika. Þó er nú ekkert búið að velja hópinn eða slíkt, en maður vill hafa vaðið fyrir neðan sig og vera með hugann við verkefnið ef að því kemur,“
Ögmundur Kristinsson landsliðsmarkvörður gekk nýlega til liðs við sænska liðið Hammarby í Stokkhólmi. Áður hafði hann dvalið hjá Randers í Danmörku í eitt ár, en Ögmundur er Frammari í húð og hár. Blaðamaður Fréttatímans náði á kappann daginn eftir góðan sigur á Gefle í sænsku úrvalsdeildinni þar sem Ögmundur hélt hreinu í marki Hammarby. Ögmundur og unnusta hans, Sandra Steinarsdóttir, hyggjast ganga í það heilaga í desember, en til stóð að gifta sig næsta sumar. Því var snarlega breytt þegar íslenska landsliðið tryggði sér farmiðann til Frakklands á dögunum.
„Við vorum búin að plana brúðkaupið í byrjun júlí á næsta ári fyrir löngu,“ segir Ögmundur. „Það er samt svolítið síðan að möguleikinn væri fyrir hendi að liðið mundi komast á mótið svo við vorum alltaf með Plan B. Þetta er besta mögulega ástæðan til þess að breyta brúðkaupsdeginum,“ segir hann. „Meira svona lán í óláni.“
Brúðkaupið verður á Íslandi þann 12. desember en Ögmundur segist halda að aðrir landsliðsmenn hafi ekki verið með svipuð plön. „Hefði mann órað fyrir þessu áður en undankeppnin byrjaði hefði ég ekki planað brúðkaupið næsta sumar,“ segir hann. „Við ákváðum þetta fyrir svo löngu síðan að við vorum ekki farin að pæla í þessum möguleika. Þó er nú ekkert búið að velja hópinn eða slíkt, en maður vill hafa vaðið fyrir neðan sig og vera með hugann við verkefnið ef að því kemur,“ segir Ögmundur. „Sandra sýndi þessu fullkominn stuðning og þetta verður bara vetrarbrúðkaup í stað sumars.“
Ögmundur hefur staðið sig vel á milli stanganna hjá Hammarby og eru Svíarnir ánægðir með Íslendingana hjá liðinu. Annar landsliðsmaður, Birkir Már Sævarsson, leikur líka með Hammarby. „Það er búið að vera smá strögl á liðinu en mér hefur gengið vel,“ segir Ögmundur. „Það er jákvætt. Deildin er búin í lok október svo það er frí í desember svo maður getur einbeitt sér að brúðkaupinu. Ég kom til Stokkhólms í sumar og skrifaði undir þriggja ára samning og okkur líkar mjög vel hér. Deildin byrjar svo aftur eftir áramót, en það er ekki alveg vitað hvenær þar sem Svíar keppa á ólympíuleikunum og svo þarf að riðla öllu vegna EM eins og á Íslandi, en alla jafna byrjar deildin í mars, svo maður verður klár ef kallið kemur fyrir Frakkland,“ segir Ögmundur Kristinsson landsliðsmarkmaður.

The post EM setti brúðkaupið í uppnám appeared first on Fréttatíminn.