Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Tvöföld húðhreinsun á kvöldin

$
0
0

Hvernig er þín kvöldrútína þegar kemur að húðumhirðu?

Mér finnst mikilvægt að hreinsa húðina tvisvar sinnum á kvöldin. Fyrst nota ég yfirleitt olíuhreinsi til að ná öllum förðunarvörunum af. Olían nær að leysa allt upp, líka vatnsheldan farða og erfið óhreinindi eins og mengun og sólarvarnir sem eru okkur mikilvægar á daginn en er erfitt að ná af á kvöldin þegar þær eru óþarfar. Næst vel ég einhvern meiri hreinsi, oft nota ég þá kremaðan hreinsi og Clarisonic hreinsiburstann til að djúphreinsa húðina og til að ná upp óhreinindum sem liggja undir yfirborði hennar. Svo ber ég andlitsvatn yfir alla húðina og loks næringarríkt næturkrem.

Hvað er ólíkt með kvöldrútínunni og morgunrútínunni?

Á kvöldin er ég alltaf með tvöfalda húðhreinsun en á morgnana geri ég yfirleitt létta yfirborðshreinsun með Micellaire hreinsivatni. Micellaire agnirnar sjúga í sig óhreinindi og skilja eftir sig frísklegt yfirborð húðar svo hún fær að vakna betur og verður tilbúin í daginn. Á daginn nota ég að sjálfsögðu sólarvörn til að verja húðina, þó sólin sjáist ekki þá þýðir það ekki að hún sé ekki þarna fyrir ofan okkur og það eru geislar hennar sem valda að miklu leyti ótímabærri öldrun húðar og það viljum við nú ekki.

Lumar þú á einhverju góðu ráði sem gerir húðinni gott, áður en maður leggst á koddann?

Í fyrsta lagi þá er ég mjög dugleg að skipta um koddaver. Á nóttunni leitast húðin okkar við að skila óhreinindum upp á yfirborð húðarinnar, óhreinindum sem liggja djúpt inní húðinni. Svo þau fara auðvitað líka í koddann okkar svo að við séum ekki að nudda okkur endalaust úr þessum óhreinindum þá er mikilvægt að skipta um koddaver. Annað er lavander, ég á lavander andiltssprey og svo næturkrem sem er alveg yndislegt að nota fyrir svefninn. Lavander hefur svo róandi áhrif á mann og mér finnst þessi ilmur hafa mjög jákvæð áhrif á svefninn minn.

Áttu þér uppáhalds húðvöru sem þú notar á kvöldin?

Olíur, ég elska að bera næringarríkar olíur á húðina mína á kvöldin. Þegar ég vil dekra alveg extra mikið við húðina mína set ég Nutri Gold olíuna frá L’Oreal eða Skyn Iceland olíuna á húðina mína og alveg nóg af henni. Svo þegar ég vakna morguninn eftir þá ljómar húðin mín og er ofboðslega mjúk og áferðarfalleg.

Erna Hrund er einn af bloggurunum á Trendnet.is þar sem hún er iðin við að fræða lesendur um allar heimsins snyrtivörur, ásamt því að leyfa þeim að skyggnast inn í sitt persónulega líf. Mynd/Hari.
Erna Hrund er einn af bloggurunum á Trendnet.is þar sem hún er iðin við að fræða lesendur um allar heimsins snyrtivörur, ásamt því að leyfa þeim að skyggnast inn í sitt persónulega líf. Mynd/Hari.

Nánar var fjallað um umhirðu húðar í Fréttatímanum 6. nóvember.

The post Tvöföld húðhreinsun á kvöldin appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652