Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Risaeðlan og Úlfur Úlfur á Aldrei fór ég suður

$
0
0

Risaeðlan er skipuð þeim Möggu Stínu söngkonu og fiðluleikara, Halldóru Geirharðsdóttur söngkonu og saxafónleikara, Ívari Bongó Ragnarssyni bassaleikara, Þórarni Kristjánssyni trommara og Sigurði Guðmundssyni gítarleikara. Hljómsveitin var stofnuð 1984 og gaf út plötuna Fame and Fossils árið 1990. Sveitin starfaði með hléum næstu árin en gáfu þó út plötuna Efta! árið 1996 og urðu útgáfutónleikar þeirrar plötu að eiginlegum lokatónleikum sveitarinnar.

Hljómsveitin hefur nú svarað kallinu frá Aldrei fór ég suður, rokkhátíð alþýðunnar á Ísafirði og kemur fram opinberlega í fyrsta sinn eftir tuttugu ára fjarveru. Allir fyrrnefndir liðsmenn sveitarinnar spila með Risaeðlunni um páskana.

Aldrei fór ég suður er nú haldin í þrettánda sinn og verður eins og áður á Ísafirði um páskana. Hátíðin hefur stækkað síðustu ár og teygt anga sína um sveitarfélagið, þar sem tónlist og fjölbreyttir viðburðir hafa sett mikinn svip á bæinn. Aðaldagskráin um næstu páska stendur yfir í tvo daga, föstudaginn langa og laugardag þar á eftir og ýmsa hliðardagskrá verður að finna frá miðvikudegi til sunnudags, að því er segir í fréttatilkynningu.

Fyrstu atriðin sem kynnt eru til sögunnar ásamt Risaeðlunni eru rappsveitin vinsæla Úlfur Úlfur, rokksveitin Agent Fresco, rokksveitin goðsagnakennda Strigaskór nr. 42 og ísfirska salsarokksveitin Mamma Hestur sem ekki hefur komið saman í lengri tíma.

The post Risaeðlan og Úlfur Úlfur á Aldrei fór ég suður appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652