Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Hættulegt að lifa á forni frægð

$
0
0

Söngvarinn Helgi Björnsson fagnaði 30 ára starfsafmæli á síðasta ári. Hann hefur verið einn ástsælasti söngvari þjóðarinnar frá því er hann steig fyrst fram á sjónarsviðið sem ungur maður með hljómsveitinni Grafík frá Ísafirði. Síðan hefur Helgi brugðið sér í allra kvikinda líki, bæði í tónlistinni og ekki síst í leiklistinni. Nýlega gaf Helgi út plötuna Veröldin er ný, sem er í fyrsta sinn í 18 ár sem hann sendir frá sér plötu með nýju efni. Helgi ætlar að stíga á svið Borgarleikhússins á næsta ári í söngleiknum Mamma Mia og segir tónlistarbransann snúast mest um það að halda út.

„Tónlistin á þessari plötu er bæði lög sem ég var byrjaður að semja í fyrra,“ segir Helgi Björnsson þar sem hann kemur sér fyrir í betri stofunni á Holtinu, „og svo fékk ég Guðmund Óskar Guðmundsson úr Hjaltalín með mér á túr um landið þar sem ég var að fagna starfsafmælinu. Þá tókum við lag sem ég hafði samið áður, til þess að fylgja þessum túr eftir. Ég fer á Land Rover heitir það og það var eiginlega byrjunin á okkar samstarfi,“ segir hann.
„Við fórum á Hótel Búðir og tókum skorpu í nokkra daga og sömdum helling af lögum. Þaðan kemur kjarninn af lögunum á plötunni. Síðan samdi ég textana með Atla Bollasyni. Það sem mér finnst svo gaman í sköpunarferli, er að fá díalóg,“ segir Helgi. „Ég er vanur því bæði með mínum hljómsveitum og svo líka í leikhúsinu. Það er gott að eiga samtal um hlutina og tjá sig um það sem maður er að gera. Gagnrýnin er líka góð í svona samstarfi og maður er orðinn það þroskaður í þessu að maður tekur það ekki nærri sér ef einhver skýtur niður hugmyndina. Þetta var mjög skemmtilegt ferli,“ segir Helgi. „Sérstaklega með textana. Yfirleitt hef ég alltaf samið þá einn og ekki fengið neinn díalóg með þá. Stundum hugsaði maður að þeir hefðu mátt vera betri, og sumt lét maður bara fara, sem er stundum ekki nógu gott. Í ljósi þess var þetta mjög gefandi vinnuferli og ég er mjög ánægður með útkomuna. Það fóru ekki öll lögin á plötuna. Ég get þá komið með síðar.“

„Mig langaði til þess að skora á mig sem söngvara. Styrkja söngvarann Helga, og það virkaði bara mjög vel. Með SSSól var ekki mikið pælt í mér sem söngvara, heldur meira sem svona performans og rokk og ról. Mér fannst ég þurfa að sanna það fyrir mér og öðrum að ég gæti sungið þessi lög sem ég fór að gera.“

Sannaði fyrir fólki að hann gat sungið
Helgi hefur ekki gefið út plötu með eigin efni síðan hann gaf út samnefnda plötu árið 1997. Hann hefur þó verið mjög iðinn við plötuútgáfu á undanförnum tíu árum þar sem hann syngur lög eftir aðra. „Það var alveg kominn tími á þetta,“ segir hann. „Það eru nokkur ár síðan þetta komst á dagskrá en svo undu önnur verkefni svo upp á sig, eins og Reiðmannaævintýrið allt saman. Sem átti aldrei að verða meira en ein plata. Svo þessi plata frestaðist alltaf. Ég er samt mjög ánægður með þennan tíma sem hefur farið í það sem ég hef verið að gera,“ segir hann.
„Ég tók svolítið frí árið 1999, sem var svona síðasta sumarið sem SSSól túraði um landið. Ég fór að vinna á Skjá Einum og þaðan til Berlínar. Það komu alveg fimm ár þar sem ég var eiginlega í fríi. Eftir það fór ég meðvitað í það að syngja lög eftir aðra,“ segir hann. „Mig langaði til þess að skora á mig sem söngvara. Styrkja söngvarann Helga, og það virkaði bara mjög vel. Með SSSól var ekki mikið pælt í mér sem söngvara, heldur meira sem svona performans og rokk og ról. Mér fannst ég þurfa að sanna það fyrir mér og öðrum að ég gæti sungið þessi lög sem ég fór að gera. Ég er mjög ánægður með að hafa gert það. Ég hafði oft dottið í einhver prógrömm þar sem ég var að syngja Dean Martin og leikhústónlist og vissi alveg að ég gæti tekist á við þetta,“ segir hann.
„Þetta hefur skilað mér fullt af öðrum verkefnum í söngnum sem er mjög skemmtilegt. Svo er þetta líka spurning um aldur og þroska. Það er gegnumgangandi með söngvara og listamenn að maður fer að leita í arfinn með árunum,“ segir Helgi. „Það sem maður ólst upp með og slíkt. Leitin að rótunum í sjálfum sér. Mikið af þessum lögum sem ég hef sungið með Reiðmönnum vindanna eru lögin sem ég hlustaði á hjá ömmu, liggjandi á stofugólfinu. Ég man hvernig teppið var þegar ég hlustaði á Lindin tær,“ segir hann.

„Ég er einhvernveginn þannig að ég hef aldrei litið til baka til að dást að því sem ég hef gert. Ég á til dæmis ekkert allar plöturnar sem ég hef sungið á. Ég er ekki með gull- og platínuplötur hangandi uppi á vegg.“

Vil fá kikkið frá áhorfendum
Á 30 ára ferli hefur Helgi brugðið sér í allra kvikinda líki. Hann er þó ekki einn af þeim sem er mikið að líta til baka og velta sér upp úr fornri frægð. Hann er alltaf með hugann við það sem gerist næst. „Ég hef aldrei pælt í því hvað það er sem ég hef gert á ferlinum sem mér finnst best,“ segir hann. „Það er frekar hvað maður hefði viljað gera betur. Maður vill alltaf gera betur. Ég er einhvernveginn þannig að ég hef aldrei litið til baka til að dást að því sem ég hef gert. Ég á til dæmis ekkert allar plöturnar sem ég hef sungið á. Ég er ekki með gull- og platínuplötur hangandi uppi á vegg. Ég er ekkert mikið að skreyta mig með gömlum verkum. Stundum hef ég hugsað hvort ég ætti ekki að gera það, en mér hefur alltaf þótt best að horfa fram á við og búa til eitthvað nýtt,“ segir hann.
„Ég á erfitt með að festast í þessu gamla. Það er fullt af hlutum sem maður hefur gert sem maður er stoltur af, en það er hættulegt að einblína bara á forna frægð. Það er ekki mjög gefandi. Ég geri mér samt alveg grein fyrir því að fólk vill heyra þessi gömlu lög sem maður hefur gert. Ég reyni samt alltaf að blanda einhverju nýju í prógrammið,“ segir hann. „Það má heldur ekki gleyma því að maður nærist á kikkinu sem maður fær frá fólki,“ segir hann. „Maður vill fá alla upp og alla til að syngja með. Best er að blanda þessu saman.“

Fer aftur í leikhúsið
Helgi er menntaður leikari og reglulega kemur hann fram í kvikmyndum og sjónvarpsmyndum. Hann sagði skilið við leikhúsið á sínum tíma eingöngu vegna þess að það komst ekki fyrir í tímaramma poppstjörnunnar. „Ég hef alltaf verið að leika með jöfnu millibili,“ segir hann. „Þessar greinar spiluðu samt ekkert sérstaklega vel saman á sínum tíma. Snemma á tíunda áratugnum var rosaleg keyrsla á SSSól og við vorum að spila hverja einustu helgi,“ segir hann. „Þá var ég að leika líka og keyra beint eftir sýningar og alltaf í tímaþröng og þetta var allt of mikið. Svo vorum við komnir í allskonar heimsfrægðardrauma eins og voru á þessum tíma, og þá tók ég meðvitaða ákvörðun um að hvíla mig á leikhúsinu. Ekkert vegna þess að ég hafði meiri áhuga á tónlistinni en leikhúsinu,“ segir hann. „Heldur horfði ég meira á þetta af þeirri skynsemi að líklega væri auðveldara að taka upp leiklistina síðar, frekar en poppstjörnudrauminn. Maður stoppar ekki þá lest þegar maður er ungur og ferskur.
Ég hef varla tekið upp á því að leika á sviði nema með einstaka undantekningum. Það hefur ekki hentað mér alveg tímalega. Hinsvegar hefur það alltaf kitlað og eftir áramót ætla ég að taka upp á því að nýju,“ segir Helgi sem mun fara með eitt aðalhlutverkanna í söngleiknum Mamma Mia sem verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu. „Ég fer með sama hlutverk og Pierce Brosnan gerði í myndinni, en ég vil vera alveg hreinskilinn með það að ég er töluvert betri söngvari en hann,“ segir Helgi og hlær. „Ég hlakka mikið til. Það er frábært að fara bara í hör-fötin og láta „tana“ sig aðeins og syngja ABBA lög í febrúar. Það er margt verra en það. Ég ákvað í þetta sinn að gefa mér ár í þetta,“ segir hann. „Hvíla mig þá frekar á bransanum á meðan. Sem er ákveðin hvíld um leið. Hann getur verið slítandi þessi tónlistarbransi svo það er gott að breyta til.“

„Auðvitað þarf margt að vinna með þeim og í rauninni byrjar vinnan hjá þeim af alvöru eftir að þættirnir eru búnir. Þá kemur í ljós úr hverju þau eru gerð. Þau eru auðvitað smá vernduð í þættinum,“

Margir efnilegir í Voice
Undanfarnar vikur hefur Helgi verið áberandi á sjónvarpsskjánum sem einn leiðbeinendanna í sjónvarpsþáttunum Voice á Skjá einum. Hann segir verkefnið hafa verið mun skemmtilegra en hann þorði að vona í upphafi. „Ég bjóst ekki við öðru en að þetta yrði skemmtilegt, en þetta er mun skemmtilegra og meira gefandi en ég þorði að vona,“ segir hann. „Það felst mikið til í því að maður er að vinna svo mikið með þessum krökkum og þessu fólki. Bæði sem leikstjóri og söngþjálfari. Það eru svo margir vinklar í þessu og þetta er mjög skapandi vinna, miklu meira en að sitja bara og horfa.
Auðvitað er ákveðin keppni í þessu líka sem gerir þáttinn svo skemmtilegan. Það eru svo mörg spennustig í hverjum þætti, sem er svo flott,“ segir hann. „Mér finnst margir af þessum krökkum mjög efnilegir og ég sé marga þarna fyrir mér gera mjög góða hluti eftir þessa þætti,“ segir Helgi. „Auðvitað þarf margt að vinna með þeim og í rauninni byrjar vinnan hjá þeim af alvöru eftir að þættirnir eru búnir. Þá kemur í ljós úr hverju þau eru gerð. Þau eru auðvitað smá vernduð í þættinum,“ segir hann.
Mundirðu treysta þeim í hljómsveitarrútu í kringum landið?
„Já, já, flestum svona,“ segir hann og glottir.
„Þau eru auðvitað mis hörðnuð og ekkert öll kannski tilbúin í svoleiðis slag.“
Plata Helga, Veröldin er ný, er komin út og ætlar hann að halda eina tónleika af því tilefni. „Ég ætla að vera með útgáfutónleika í Reykjavík þann 3. desember og það ríkir smá leynd yfir því hvar þeir verða, ennþá. En þeir verða í miðbænum,“ segir Helgi Björnsson.

The post Hættulegt að lifa á forni frægð appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652