Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Beyoncé hannar fyrir Topshop

$
0
0

Línan mun líklega ganga undir nafninu Parkwood Topshop Athletic. Í tilkynningu frá söngdívunni kemur fram að hún hefði ekki getað hugsað sér betri samstarfsaðila. „Að vinna með þróunarteymi Topshop og að búa til þessa línu hefur verið spennandi og ég hlakka til að vinna enn frekar með þeim,“ sagði Beyoncé um samstarfið. Línan mun innihalda fatnað og fylgihluti í íþrótta- og götustíl, en óhætt er að áætla að um engin venjuleg föt í ræktina verði að ræða.

Beyoncé er ekki ókunnug fatahönnunarheiminum, en hún hefur áður hannað undir merkinu Deréon ásamt móður sinni, Tinu Knowles. Línan verður fáanleg í 20 löndum næsta sumar og verða aðdáendur Beyoncé á Íslandi að bíða og krossa fingur um að línan rati í verslanir á Íslandi.

Söngdívan Beyoncé Knowles er í óða önn þessa dagana við að hanna fatalínu í samstarfi við Topshop. Línan mun innihalda fatnað og fylgihluti í íþrótta- og götustíl, en líklega verður þó ekki um nein venjuleg ræktarföt að ræða. Mynd/Getty.

The post Beyoncé hannar fyrir Topshop appeared first on Fréttatíminn.

Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652