Sin Fang mun koma fram ásamt gesta hljóðfæraleikurum og flytja eldra efni í bland við nýja tónlist af væntanlegri breiðskífu á tónleikaröð Blikktrommunar í Hörpu á miðvikudaginn næsta, 2. desember.
Sindri Már Sigfússon hefur komið fram undir ýmsum nöfnum en starfar nú aðallega undir nafninu Sin Fang. Hann hefur verið í hljómsveitum á borð við Lovers without lovers, Seabear, Pojke og Gangly. Síðasta breiðskífa Sin Fang, Flowers, hlaut frábærar viðtökur og var meðal annars valin plata ársins 2013 hjá Grapevine auk þess sem lagið Young Boys var valið besta lag ársins af tímaritinu. Nýjasta breiðskífa Sin Fang kemur út 2016 og eru meðal gesta á henni Jófríður úr Samaris og Pascal Pinon, Jónsi úr Sigur Rós og Sóley Stefánsdóttir.
Blikktromman er ný tónleikaröð í Hörpu sem leggur áherslu á að bjóða upp á tónleika með nokkrum fremstu tónlistarmönnum þjóðarinnar í gæðaumhverfi tónlistarhússins okkar við höfnina. Blikktromman verður slegin fyrsta miðvikdagskvöld hvers mánaðar, veturinn 2015-2016. Boðið verður upp á fjölbreytta flóru sitjandi tónleika í Kaldalónssal Hörpu, þar sem tónleikagestir geta hlýtt á framúrskarandi listamenn í návígi þessa skemmtilega salar.
Eftir tónleikana gefst gestum kostur á að setjast niður með drykk með útsýni yfir smábátahöfnina.
The post Sin Fang í Blikktrommunni appeared first on Fréttatíminn.