Baldvin Snær Hlynsson og Halldóra Ósk Helgadóttir gáfu nýlega út plötuna Á Vatnsenda. Halldóra, sem er 17 ára, og Baldvin, sem er 18 ára, eru bæði nemar í Menntaskólanum við Hamrahlíð og störfuðu við verkefni sem heitir Skapandi sumarstörf en það er rekið í Kópavogi á sumrin. Baldvin segir að þau hafi heimsótt öldrunarheimili og stofnanir í Kópavogi í sumar og flutt gömul íslensk dægurlög sem kveikti þá hugmynd að taka lögin upp og gefa út. Þau fengu Ragnar Bjarnason til þess að syngja með Halldóru í einu laginu, en á þeim er 64 ára aldursmunur.
„Síðasta sumar vorum við með verkefni í skapandi sumarstörfum að æfa upp dægurlög og þjóðlög,“ segir Baldvin Snær Hlynsson píanóleikari. „Við fórum svo á milli öldrunarheimila í Kópavogi og spiluðum fyrir gamla fólkið. Þetta fékk mjög góðar viðtökur og okkur þótti þetta mjög gaman og gefandi,“ segir hann. „Íbúarnir voru mjög þakklátir fyrir þetta framtak okkar, en þeir eru ekki vanir að fá svona tónlistarflutning til sín. Þetta eru allt þekkt íslensk dægurlög sem við höfðum á dagskránni og allt lög sem þetta fólk þekkir vel,“ segir hann. „Við fórum líka í heimsókn á heimili fyrir börn með sérþarfir og á bæjarskrifstofurnar.
Í beinu framhaldi af þessu langaði okkur að ramma verkefnið inn með því að taka þessi lög upp á plötu. Við fengum að taka plötuna upp inni á Tónlistarsafni Íslands þar sem er gamall Steinway flygill sem Árni Kristjánsson átti. Þar tók ég upp undirleikinn og sönginn tókum við svo bara upp í herberginu mínu heima,“ segir Baldvin. „Okkur langaði svo til að taka upp einn dúett á plötuna og ákváðum að hringja í Ragga Bjarna og athuga hvort hann væri til í það með okkur. Lagið sem við vildum að hann syngi var Undir stórasteini sem hann söng með Elly Vilhjálms á sínum tíma. Raggi mundi ekki alveg hvaða lag þetta var svo ég spilaði það fyrir hann í gegnum símann og hann söng með í símanum allan tímann,“ segir hann. „Mjög skemmtilegt samtal. Hann kom svo til okkar einhverjum dögum síðar og söng þetta inn með Halldóru inni í herbergi, sem var mjög gaman,“ segir Baldvin sem er að læra á píanó í FÍH. Halldóra nemur söng í Söngskólanum í Reykjavík.
„Við kynntumst sumarið fyrir menntaskóla og byrjuðum að spila saman,“ segir hann. „Okkur langar að heimsækja elliheimilunum aftur og svo langar okkur að halda útgáfutónleika fyrir jólin, en ég veit ekki hvort það tekst. Það er svo mikið að gera hjá okkur í tónlistarnáminu og MH fyrir jólin, en það væri gaman að halda tónleika,“ segir Baldvin Snær Hlynsson.
Platan Á Vatnsenda er væntanleg í verslanir en þangað til er hægt að fá plötuna hjá Baldvin og Halldóru með því að finna þau á Facebook.
The post 64 ára aldursmunur appeared first on Fréttatíminn.