Aðventukransarnir verða sífellt fjölbreytilegri og var það svo sannarlega raunin þegar Rakel Hlín Bergsdóttir, eigandi Snúrunnar, fékk nokkra valinkunna einstaklinga til að virkja ímyndunaraflið og setja saman sína eigin aðventukransa.
Kanill, mandarínur og negull
Þó svo að hvorki hafi verið um tímamörk né keppni að ræða var söngvarinn Friðrik Dór Jónsson duglegur að láta meðskreytara sína vita þegar hann lauk við sinn krans, fyrstur allra. Það er þó ljóst að hann lagði mikla vinnu í meistaraverkið.
„Ég byrjaði á að velja skálina af því að maður byggir ekkert hús á sandi og grunnurinn þarf að vera góður,“ segir Frikki. Í kransinum er einnig að finna íkorna og kanil, og eru ríkar ástæður fyrir því. „Á mínu heimili eigum við mjög mikið af íkornajólaskrauti og ég vildi því tileinka íkornann mömmu sem notar slíka í sínum útstillingum. Kanillinn kemur svo með jólailminn sem er ómissandi. Ef ég hefði haft tök á hefði ég raspað aðeins börkinn af mandarínunni til að fá auka jólailm. Svo er líka skemmtilegt trix að sjóða saman negul og mandarínur, þá kemur jólailmurinn út um allt hús.“

„Ég valdi fjögur há kerti því mér finnst mikilvægt að vera með landslag í kransinum af því þetta er íslenskur krans.“
Symmetría og litasamsetning skiptir höfuðmáli
Frikki var eini sem valdi há kerti í kransinn. „Ég valdi fjögur há kerti því mér finnst mikilvægt að vera með landslag í kransinum af því þetta er íslenskur krans. Kertastjakana valdi ég svo með tilliti til litasamsetningar og symmetríu. Svo má ekki gleyma fersku berjunum og greinunum hjá íkornanum. Íkornar dveljast mikið í skógum og ég var að reyna að tengja við þeirra náttúrulega umhverfi.“ Að sögn Frikka setur jólalakkrísinn punktinn yfir i-ið. „Ég vil að sjálfsögðu geta boðið gestum upp á lakkrís.“

Efniviðurinn í kransana var fjölbreytt vöruúrval Snúrunnar, auk þess sem blómabúðin 4 árstíðir sá fyrir greni, lifandi blómum og ýmsu öðru smádóti.
Unnið í samstarfi við Snúruna
The post Ómissandi íkornajólaskraut appeared first on Fréttatíminn.