„Fyrsta hugsun sem kom upp í huga minn þegar ég frétti af skilnaði foreldra minna var einföld: Nú fengi ég tvær gjafir frá þeim um jólin í stað einnar,“ segir Ragnar Hansson, leikstjóri og uppistandari, þegar hann er beðinn um að rifja upp eftirminnileg jól.
„Ég hef lært tvennt um sjálfan mig af þessu atviki. Í fyrsta lagi að ég var fáviti mikill, en ég lærði líka um mátt sjálfsblekkingar og hvernig manneskjan notar oft hækjur eins og efnishyggju til að fylla upp í tómarúmið innan í sér. Og þetta var mín leið til að eiga við þetta áfall.“
Hann segir þetta þó líklega vera eðlileg viðbrögð sjö ára barns en allt til tvítugsaldurs og lengur hafði þetta haft mikil áhrif á hann. „Það var ekki fyrr en aðfangadagskvöld eitt, þegar ég var á 21. ári, að raunveruleikinn hafði loks upp á mér,“ segir Ragnar. Eftir matinn opnaði hann jólapakka frá móður sinni sem hann bjó enn hjá. Í pakkanum var diskastell. Ragnar segir skilaboðin hafa verið einföld.
„Jæja. Er ekki kominn tími til að flytja að heiman?“
„Eins mikið og ég reyndi að vorkenna sjálfum mér þá er þetta líklega besta jólagjöf sem ég hef fengið. Hún reif mig hressilega úr fjötrum þroskaleysis, en þó ekki of hratt, því áfallið var dempað af teiknimyndabók sem ég fékk líka og ruggaði litla stráknum í mér í svefn þá nóttina. En saman mótuðu þessar tvær gjafir sýn mín á hátíðirnar. Í mínu fullorðinslífi hef ég hægt og rólega lært að njóta hlutana sem skipta máli og fundið aftur jólaandann, að miklu leyti með hjálp barnanna minna.“
Þrátt fyrir að Ragnar hafi lært ákveðna lexíu segir hann hina máttugu efnishyggju ekki hafa sleppt af honum takinu.
„Enn þann dag í dag verð ég fyrir vonbrigðum ef ég fæ ekki smá dót í jólagjöf. Með „dót“ á ég ekki við neitt flóknara en einn mynddisk eða skemmtilega bók. Fatnaður, matur, samvera og allt það fullorðins kjaftæði geri alveg helling fyrir mig, en á okkar heimili virkar jólakötturinn þannig að ef þú færð ekki einn harðan pakka þá er voðinn vís,“ segir Ragnar og að lokum; „Aldrei vanmeta kraft efnishyggjunnar á aumkunarvert skilnaðarbarn í gervi miðaldra manns.“
The post Tök efnishyggjunnar á miðaldra manni appeared first on Fréttatíminn.