Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Mömmustrákur með hjarta úr gulli

$
0
0

Ólafur Darri fæddist 3. mars 1973 í Connecticut í Bandaríkjunum og bjó þar í fjögur ár en fluttist síðan með foreldrum sínum til Íslands. Hann ólst upp í Seljahverfinu í Reykjavík, gekk í Ölduselsskóla en fór svo í fyllingu tímans í Menntaskólann í Reykjavík og að lokum í Leiklistarskóla Íslands og útskrifaðist þaðan vorið 1998.
Hann var ekkert yfir sig hrifinn af því að vera á Íslandi fyrst eftir heimkomuna og í fyrsta sinn sem hann var sendur út að leika í rigningunni á Íslandi stóð hann bara kyrr, dúðaður í regngalla, hágrét og neitaði að hreyfa sig. Hann var mikill mömmustrákur og raunar svo háður móður sinni að það var ekki við það komandi að hann fengist til að yfirgefa hana til að byrja í skóla. Það mál leystist ekki fyrr en móðir hans, Björk Finnbogadóttir sem er hjúkrunarfræðingur, tók það til bragðs að ráða sig sem skólahjúkrunarfræðing í Ölduselsskóla svo hægt væri að tæla drenginn til skólagöngu með því loforði að mamma væri þar alltaf líka. Ólafur Darri er enn mjög náinn móður sinni og föður, Ólafi Steingrímssyni, og hittir þau oft í viku þegar hann er á landinu.
Leiklistaráhugi Ólafs Darra byrjaði ekki fyrr en í MR þar sem hann lék í sýningu Herranætur 1993 á Drekanum eftir Jewgeny Schwartzí. Í sýningu Herranætur árið 1994 lék Ólafur Darri svo sjálfan Sweeney Todd undir leikstjórn Óskars Jónassonar og áhorfendur og gagnrýnendur voru á einu máli um að stjarna væri fædd. Hann hafði þó alls ekki hugsað sér að leggja leiklistina fyrir sig og það var eingöngu fyrir þrábeiðni vina hans sem hann fór í inntökupróf í Leiklistarskólanum. Hann hefur þó látið hafa það eftir sér að hann geti ekki séð sig fyrir sér í nokkru öðru starfi og sé því vinum sínum eilíflega þakklátur fyrir kúgunina. Fyrsta kvikmyndahlutverkið fékk hann svo á meðan hann var enn í Leiklistarskólanum. Það var í Perlum og svínum sem Óskar leikstýrði þar sem Ólafur Darri sló gjörsamlega í gegn og hefur æ síðan verið einn allra dáðasti og vinsælasti leikari þjóðarinnar.
Eins og alþjóð veit er Ólafur Darri á fljúgandi siglingu inn í heim Hollywood, en þrátt fyrir að leika reglulega í kvikmyndum og sjónvarpsþáttum með stórstjörnum eins og Vin Diesel, Liam Neeson, Ben Stiller, Woody Harrelson og Matthew McConaughey er Ólafur Darri ekki mikið gefinn fyrir sviðsljósið, er frekar félagsfælinn og á oft erfitt með stór boð og veislur. Hann unir sér best heima með „fóllkið sitt“ hjá sér og veit fátt skemmtilegra en að elda góðan mat fyrir gestina, enda er hann sagður afburða kokkur. Önnur uppáhaldsiðja hans er að horfa á kvikmyndir, alls konar kvikmyndir, og hlusta á tónlist sem hann hefur mikla ástríðu fyrir og er „risastór partur“ af honum eins og náinn aðstandandi orðar það. Hann er líka mikill lestrarhestur, getur eiginlega ekki hugsað sér dag þar sem hann les ekki einhvers konar bókmenntir.
Þegar spurt er um galla Ólafs Darra vefst viðmælendum tunga um tönn, þeir humma og jæja og vilja helst beina talinu að einhverju öðru helst þó kostum hans. Öllum ber þeim saman um að hann hafi hjarta úr gulli, sé frábær faðir og almennt yndisleg mannvera sem ekki megi neitt aumt sjá eins og vinátta hans og ræktarsemi við Sunnu Valdísi, sem glímir við AHC-sjúkdóminn, sé gleggsta dæmið um. Fólki ber þó einnig saman um að ekki sé alltaf auðvelt að vera nálægt honum því hann geti illa leynt því hvernig honum líður. „Darri er mjög lélegur að fela hvernig honum líður og með mjög sterka áru þannig að þegar honum líður vel og er í góðu skapi getur hann lýst upp herbergið og fengið alla með sér en á hinn bóginn ef eitthvað amar að fer það ekki fram hjá neinum heldur,“ segir einn viðmælandinn. „Hann er líka hreinskilinn og ræðir hlutina strax ef eitthvað kemur uppá, forðast því krump og að láta eitthvað ósagt. Hann átti það til hér á árum áður að hleypa öllum að, sem gat orðið of mikið áreiti því fólk dregst að honum eins og býflugur að hunangi. Hann var því oft alveg búinn á því sjálfur og átti litla orku eftir fyrir sig sjálfan. En þetta er nú breytt í seinni tíð. Hann er auðvitað jafn vinsamlegur og áður en hann kann að setja mörk. Það er þó alls ekki galli og hann er frábær félagi og dásamlegur pabbi, enda með risastórt hjarta.“
Ólafur Darri Ólafsson
Fæddur í Connecticut 3. mars 1973
Foreldrar: Björk Finnbogadóttir og Ólafur Steingrímsson
Maki: Lovísa Ósk Gunnarsdóttir, dansari
Börn: Tvær ungar dætur.
Námsferill:
Ölduselsskóli, Menntaskólinn í Reykjavík, Leiklistarskóli Íslands.
Íslenskur leiklistarferill:
Meðal verkefna Ólafs Darra í Þjóðleikhúsinu eru Gerpla, Íslandsklukkan, Frida… viva la vida, Ívanov, Pétur Gautur og Rambó 7. Í Borgarleikhúsinu hefur hann meðal annars leikið í Fjandmanni fólksins, Sumargestum, Kristnihaldi undir jökli, Hamlet og Músum og mönnum. Með Vesturporti hefur Ólafur Darri meðal annars leikið í Rómeó og Júlíu, Woyzeck, Kommúnunni, Kringlunni rústað, Títusi og Glæp gegn diskóinu.
Ólafur Darri hefur leikið í fjölmörgum kvikmyndum og sjónvarpsþáttum og má þar nefna Perlur og svín, Blóðbönd, Bjólfskviðu, Börn, Reykjavik Rotterdam, Brúðgumann, Sveitabrúðkaup, Kóngaveg, Brim, Rokland, Djúpið og XL að ógleymdri glæstri frammistöðu hans í Fangavaktinni.

Helstu erlendu kvikmyndir og sjónvarpsþættir:
The Last Witch Hunter, How and Why, We Hate Paul Revere, A Walk Among the Tombstones, Banshee, True Detective og The Secret Life of Walter Mitty.

The post Mömmustrákur með hjarta úr gulli appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652