Með hækkandi leiguverði og minnkandi framboði á húsnæði sem hentar ungu fólki, fjölgar þeim sem dvelja í hreiðrinu fram eftir aldri. Talið er að nærri helmingur ungs fólks á aldrinum 18-30 ára í Evrópu búi enn í foreldrahúsum. Ísland er þar ekki undanskilið. Eru þetta ósjálfstæðir eilífðarunglingar eða er þetta bara það sem koma skal ef leigumarkaðurinn breytist ekki?
Kristín Helga Ríkharðsdóttir er 22 ára gamall nemi á lokaári í myndlist við Listaháskóla Íslands. Hún býr í kjallara raðhúss fjölskyldu sinnar á meðan hún klárar námið. „Mamma flutti úr minni íbúð í raðhús og við systir mín fengum að nota kjallara hússins. Núna er systir mín reyndar flutt og ég nota herbergið hennar sem skrifstofu, svo ég hef það óvenju gott. Ég bý í 5 mínútna fjarlægð frá skólanum og hef alveg mitt prívasí hérna.“
Hún segist finna fyrir minnkandi pressu frá samfélaginu til að búa sjálfstætt, þar sem svo margir séu í sömu stöðu, sérstaklega þeir sem séu á námslánum. Fæstir sjái kost í því að taka full framfærslulán og hafa þau svo á bakinu alla ævi. Kristín sér ekki fyrir sér að fara út á leigumarkað Reykjavíkur eftir nám, enda stefnir hugur hennar út fyrir landsteinana. „Ég hef alltaf séð fyrir mér að flytja til útlanda eftir nám, en það tengist lítið leigumarkaðnum, þó hann væri hagstæður fyrir ungt fólk myndi ég samt vera með þessa útþrá.“
Salvör Gullbrá Þórarinsdóttir
salka@frettatiminn.is


http://www.frettatiminn.is/fullordinn-i-foreldrahusum/
The post Hefur sitt prívasí í kjallaranum hjá mömmu appeared first on Fréttatíminn.