Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Mergsýnið týndist á Landspítalanum – Traustið á heilbrigðiskerfinu farið

$
0
0

„Ég er farinn að spyrja mig hvort ég sé í góðum höndum í íslenska heilbrigðiskerfinu,“ segir Svanur Pálsson sem greindist með sjaldgæfa tegund af krabbameini fyrir ári. Hann hefur ítrekað orðið fyrir barðinu á mistökum á Landspítalanum og segist hugleiða að flytjast búferlum til Svíþjóðar.

Svanur Pálsson greindist með Sezary heilkenni í fyrra en það er afar sjaldgæft eitilfrumukrabbamein, en þetta er fyrsta íslenska tilfellið sem vitað er um. Hann hefur verið óvinnufær og barist fyrir lífi sínu í meira en ár, meðal annars hefur hann gengist undir erfið mergskipti í Svíþjóð, þar sem hann dvaldi í þrjá mánuði.

Fyrstu mistökin sem Svanur varð fyrir var þegar hæð og þyngd var víxlað við lyfjagjöf og hann fékk tvo skammta af krabbameinslyfjum, sem voru rangt út reiknaðir vegna þess. „Þeir reiknuðu sem sagt skakkt, þannig að ég var metri á lengd og 175 kíló. Það er auðvitað mjög fyndið, en afleiðingarnar hefðu getað verið skelfilegar.“
Hann þarf vikulega að láta taka úr sér blóðsýni svo hægt sé að fylgjast með stöðunni. Í eitt skipti var hann í læknaviðtali fyrir sýnatökuna. Þá sér læknirinn að það er búið að taka blóðsýnið þann daginn. Þegar farið var að skoða málið kom í ljós að blóðsýni úr öðrum sjúklingi höfðu verið skráð í læknaskýrsluna hans fyrir mistök.

„Þá var tekið mergsýni úr mér fyrir nokkru. Ég var orðinn þreyttur á að bíða eftir svari, þegar það voru liðnar þrjár vikur, og ég hringdi út til Svíþjóðar en þá kom í ljós að sýnið hafði aldrei borist frá Íslandi. Frekari eftirgrennslan leiddi í ljós að DHL hafði aldrei fengið sýnið. Það virðist því hafa týnst á Landspítalanum,“ segir Svanur. „Mér skilst á hjúkrunarfræðingi á deildinni að ég hafi verið einstaklega óheppinn. Mér finnst hinsvegar ekki hægt að horfa þannig á málið.” Hann bendir á að tíminn sé afar dýrmætur í slíku veikindastríði. Nú bendi allt til þess að krabbameinið sé komið aftur í húðina. „Og mergsýni er töluvert inngrip fyrir sjúklinginn og líka kostnaðarsamt sýni,“ segir Svanur. „Ekki bara fyrir heilbrigðiskerfið heldur þurfa sjúklingar líka að greiða fyrir það. En þrátt fyrir að sýnið hafi týnst hefur enn ekki verið boðin endurgreiðsla. Á Íslandi er ætlast til að sjúklingarnir haldi utan um kerfið, en ekki öfugt,“ segir hann. Sem dæmi um það þurfti hann sjálfur að sjá um að útvega tvær nauðsynlegar bólusetningar sem þurfti eftir að hann sneri aftur til Íslands, eftir mergskiptin í Svíþjóð.

Svanur og eiginkona hans íhuga alvarlega að flytjast búferlum til Svíþjóðar: „Þetta er stórt skref og stór ákvörðun, en nú er traustið á kerfinu að hverfa og mér líður ekki eins og ég sé í öruggum höndum eftir að ég kom heim,“ segir Svanur. „Í Svíþjóð eru læknar með reynslu af þessum sjúkdómi, það er minna álag á starfsfólki og meira úrval af lyfjum. Næstu vikur munu líklega fara í það hjá okkur fjölskyldunni að velta fyrir okkur kostum og göllum og vega og meta hvort landflótti sé raunhæfur kostur.“

 

Ljósmynd/Úr einkasafni

The post Mergsýnið týndist á Landspítalanum – Traustið á heilbrigðiskerfinu farið appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652