Hús í miðbænum sem bíða niðurrifs eru leigð út til fólks á hrakhólum og farandverkamanna. Þingvangur leigir Lárusi Valberg Valbergssyni hjá Afl-verktökum hluta íbúðanna sem hann framleigir. Hann hefur tekið að sér ýmis verk fyrir félagið, aðallega að hreinsa til fyrir og eftir niðurrif gamalla húsa.
Lárus Valberg Valbergsson hefur hóp útlendinga frá Austur-Evrópu í vinnu. Margir þeirra búa hjá Lárusi í niðurrifshúsunum og greiða honum leigu fyrir. Lárus segir við Fréttatímann að hann sé að hjálpa þeim um húsnæði svo þeir lendi ekki í vandræðum. „Þetta eru aðallega trésmiðir, flísarar og múrarar. Það er mjög erfitt að fá starfsmenn og ég reyni að koma til móts við þá með húsnæði.“
Kristján Sveinlaugsson, umsjónarmaður fasteigna hjá Þingvangi, segir að félagið hafi leigt út sumar íbúðirnar beint, en viðskiptin við Lárus hafi í raun gengið í arf frá Landsbankanum eða fasteignafélaginu Regin, sem var í eigu bankans. Í sumum tilfellum hafi hann standsett húsin áður hann leigði þau, til að mynda á Vatnsstígsreit.
Fólk sem leigir á slíkum kjörum þarf að vera viðbúið því að þurfa að rýma húsin með skömmum fyrirvara. Þá eru húsin í bágu ásigkomulagi og stundum er búið að setja hlera fyrir útidyr íbúðanna og negla upp í gluggana. Kristján segir að leigan taki mið af því.

Lárus Valberg segir að leiguverðið sé trúnaðarmál milli hans og leigjendanna.
Kristján segir fulla þörf á því að hafa einhvern inni í húsunum fram að niðurrifi til að forða húsunum frá hústökufólki. Hann nefnir sem dæmi að sagt sé að mótorhjólasamtökin Outlaws hafi lagt undir sig húsið Smiðjustíg 4 og dvalið þar lengi áður en húsið var rifið. Lögreglan hafi ekki þorað að grípa til neinna aðgerða þótt hún væri beðin um það. „Rétt áður en eitt húsið á þessum reit var rifið, og búið var að taka burtu klósett og rafmagn, gekk verkstjóri á byggingarsvæðinu líka fram á tvær konur sem voru að gera sig líklegar til að flytja inn, þar sem þær vissu að húsið var autt,“ segir Kristján.
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir – tka@frettatiminn.is
The post Leigja fólki hús sem á að rífa appeared first on Fréttatíminn.