Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Krakkarnir í Made in Children bæta heiminn: Matarsóun og rafmagnsbílar

$
0
0

Herdís, Ylfa og Flóki eru þrjú þeirra tíu krakka sem leika í leikverkinu Made In Children í Borgarleikhúsinu. Krakkarnir hjálpuðu einnig til við að semja verkið ásamt leikstjórum sýningarinnar.

„Þetta er eins og tyggjó: Einhver tyggur það fyrst og svo megum við móta það eins og við viljum,“ segir Ylfa. „Úff, ekki góð myndlíking,“ segir Flóki og hryllir sig. Ylfa útskýrir að hún meini að leikstjórarnir hjálpi þeim að gera flott atriði úr hugmyndum krakkanna.
Vinna leikarans er strembin, og krakkarnir hafa staðið í ströngu á löngum æfingum og þurft að læra allt verkið utan að. „Ef maður gleymir dansspori eða línu á maður bara að halda áfram eins og ekkert hafi í skorist,“ segir Herdís, reynslunni ríkari eftir ferlið.
Aðspurð hvort þau langi að leika meira eftir Made in Children jánka stelpurnar. Flóki segir hins vegar þetta skipti nægja, þó hann sé ánægður með reynsluna.
Verkið segja krakkarnir fjalla um hvernig börn gætu gert heiminn betri, og hvernig hann verður í framtíð þeirra. Þremenningarnir telja sjálf þörf á að bæta heiminn, og nefna ýmsar leiðir til þess: „Við gætum til dæmis notað rafmagnsbíla meira, eins og í Noregi. Þar þarf maður ekki að borga reikninga fyrir þá,“ segir Herdís, óvæntur fróðleiksbrunnur um rafmagnsbílanotkun Norðmanna.

Ylfa segir einnig mikilvægt að sporna við matarsóun, og krakkarnir taka undir að maður eigi ekki að henda mat að óþörfu. Með því ljúka þau spjallinu, og hvetja fólk til að koma á sýninguna og fá fleiri hugmyndir um hvernig bæta skuli jörðina okkar.

Made in Children verður frumsýnt í Borgarleikhúsinu föstudaginn 1.apríl.

 

The post Krakkarnir í Made in Children bæta heiminn: Matarsóun og rafmagnsbílar appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652