Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Fullorðinn í foreldrahúsum: Gaman að fá að vera barn aðeins lengur

$
0
0

Með hækkandi leiguverði og minnkandi framboði á húsnæði fyrir ungt fólk í startholum lífsins fjölgar þeim sem dvelja í hreiðrinu fram eftir aldri. Talið er að nærri helmingur ungs fólks á aldrinum 18-30 ára í Evrópu búi í foreldrahúsum. Er þessi þróun jákvæð og þroskandi fyrir sambönd fólks við foreldra sína eða frestun eilífðarunglinga á að takast á við lífið?

25544_stefan_gunnar_fullorðinn_i_foreldrahusum-2
Stefán Gunnar og konurnar í lífi hans: Dóra mamma og Lára bróðurdóttir. Myndir|Rut Sigurðardóttir

„Stefán er fyrst og fremst svo mikill gleðigjafi,“ segir Dóra, móðir Stefáns, aðspurð hvort gagn sé að því að hafa Stefán Gunnar búandi heima. Stefán Gunnar, móðir hans og Sigurður, faðir hans, búa í Litla Skerjó í fallegu rauðu húsi. Stefán vinnur í félagsmiðstöð og klárar tómstundafræði í háskólanum í vor. „Áður bjuggu bræður mínir, þeir Haddi Gunni og Maggi Gunni hér líka. Nú er bara Stebbi Gunni eftir,“ segir Stefán.

Samfara því að kaupmáttur ungs fólks hefur minnkað verulega síðastliðin 20 ár hefur leigumarkaðurinn orðið erfiðari að takast á við. Stefán er sáttur við að búa heima, enda í námi og á í góðu sambandi við foreldra sína.
„Auðvitað vill maður vera sjálfstæður, það er helsti vankanturinn á þessu. En svo er líka skemmtilegt að fá að vera barn aðeins lengur.“

Stefán segist ekki telja ungu kynslóðina sem býr heima hjá foreldrum sínum ósjálfstæða. Hann segir heldur jákvætt að ungt fólk fái frekari undirbúning fyrir lífið, en sé ekki hrint út úr hreiðrinu strax við sjálfræðisaldur.

25544_stefan_gunnar_fullorðinn_i_foreldrahusum-3

Dóra segist jafnframt læra margt af sambúðinni við Stefán, son sinn, sem er opinn með að hafa tekist á við kvíða frá æsku og skrifaði pistil um kvíða þegar vitundarvakning um geðsjúkdóma, #égerekkitabú, tröllreið samfélagsmiðlum.

„Stebbi er nefnilega nútímamaður sem ræðir um hlutina,“ segir Dóra. „Ég er ekki af þeirri kynslóð. Hann benti mér til dæmis á að ég ætti að fara til sálfræðings til að takast á við hluti sem ég hef ekki gert áður. Og ég ætla að taka þeim ráðum.“
Stefán bendir á að kvíði og þunglyndi sé sem betur fer minna tabú hjá ungu kynslóðinni. „Við erum dugleg að deila reynslu á milli okkar þriggja á heimilinu og ausa úr okkur. Svo ég held að það græði allir á sambúðinni.“

25544_stefan_gunnar_fullorðinn_i_foreldrahusum-4

Stefán Gunnar er sjöundi í seríu heimsókna til fullorðinna sem búa í foreldrahúsum. Áður hafa þau HrafnhildurPoddi, Sunna, Ragnar Bjarni, Kristín Helga og Hrútur verið heimsótt.

 

The post Fullorðinn í foreldrahúsum: Gaman að fá að vera barn aðeins lengur appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652