Quantcast
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Róbótar þrífa hjá öldruðum –Öldrunarheimilin færast óðfluga í átt að sjálfvirkni

Notkun svokallaðra ræstingarróbóta er hluti af tilraunaverkefni til að auka sjálfvirkni öldrunarheimila og lækka kostnað við þrif.
Halldór Sigurður Guðmundsson, framkvæmdastjóri Öldrunarheimila Akureyrar, segir ræstingaróbóta hafa verið notaða á Norðurlöndunum árum saman og nú geti starfsmenn nýtt tímann betur með vistmönnum heimilanna.Öldruðum fjölgi það ört að það verði aldrei til nóg starfsfólk til að sinna þeim öllum. Þar komi róbótarnir sterkir inn.
„Veikleiki tækjanna er aðallega sá að afköst vélanna eru lítil svo það þarf oft að tæma þær.“

Verkefnið er samstarfsverkefni Öldrunarheimila Akureyrar og fyrirtækisins Hreint, sem einnig sér um að afla mannskapar í mannleg þrif á heimilinu.
„Enn sem komið er skiljum við róbótana ekki eftir eina inni í herbergjunum heldur fylgjumst grannt með þeim. En þetta hefur gengið vel hingað til,“ segir Halldór.

 

The post Róbótar þrífa hjá öldruðum – Öldrunarheimilin færast óðfluga í átt að sjálfvirkni appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652