Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ókeypis fræðsla um húsamálun

$
0
0

Á fundinum verður fjallað um yfirborðsmeðhöndlun utan húss, málun útveggja, hurða, glugga og þaka. Fjallað verður um málun á timbri, steinsteypu, múr og málmum.

Á fundinum munu sérfræðingar á sviði málunar og utanhússviðhalds fjalla um verndun yfirborðs byggingarefna fyrir tæringu, fúa og öðru niðurbroti. Fjallað verður um mismunandi efni og aðferðir við að hreinsa, verja, grunna og mála hús. Þá munu framleiðendur og söluaðilar málningar kynna þau efni sem þeir hafa á boðstólum og mun gestum gefast kostur á að prófa efni.

Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Hann stendur frá klukkan 16-18.

The post Ókeypis fræðsla um húsamálun appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652