Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

6 heilræði til húsfélaga í framkvæmdaham

$
0
0

1.
Fá hlutlausan sérfræðing til að meta ástand eignarinnar og viðgerðaþörf.

2.
Við minni verk er hægt að óska eftir tilboðum frá verktökum byggðum á magntölum og verklýsingu. Við stærri verk fer yfirleitt fram útboð.

3.
Meta þarf tilboðin í samhengi við útboðsgögnin, heildarverð, einingaverð, uppsetningu tilboðsins og verktíma.

4.
Þegar ákveðið hefur verið hvaða tilboði skal taka, er gengið til samninga við viðkomandi verktaka. Seint verður nægjanlega brýnt fyrir fólki mikilvægi þess að gera skriflegan samning við verktaka hvort sem er um lítil eða stór verk að ræða.

5.
Eftirlit með framkvæmd þarf að vera í vel skilgreint og föstum farvegi og oft er ráðinn til þess óháður aðili.

6.
Lokauppgjör fer fram eftir að verki telst lokið. Mikilvægt er að taka út framkvæmdina og frágang á verkinu áður en lokagreiðsla fer fram.

Heimild: Húseigendafélagið.

The post 6 heilræði til húsfélaga í framkvæmdaham appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652