Quantcast
Channel: Fréttatíminn
Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652

Ég trúði þessu ekki sjálfur

$
0
0

Í tíu mánuði var Jóhannes Kr. Kristjánsson með stillt á niðurteljara að sunnudeginum 3. apríl, þegar hann vissi að framtíð forsætisráðherra myndi ráðast. Að burðast einn með þetta leyndarmál reyndist mikil þolraun fyrir tilfinningaveruna. 

Við Jóhannes hittumst klukkan ellefu um kvöld, tveimur sólarhringum eftir að afrakstur þrotlausrar vinnu var gerður opinber í Kastljósi RÚV á sunnudag. Aðeins klukkutímum eftir að Sigmundur Davíð hrökklaðist úr starfi. Tímasetningin er lýsandi fyrir vinnudaga Jóhannesar um þessar mundir. Hann býður mér á skrifstofu sína í austurborginni og tekur á móti mér með opinn faðminn, þreytulegur og skeggjaður með sígarettu í munnvikum.

Á ómerktri vinnustofunni er dregið fyrir alla glugga, matarumbúðir og kókflöskur eru á borðum og staflar af gögnum um allt. Hann vill ekki að fólk viti hvar hann vinnur. „Hér höfum við haldið til dag og nótt undanfarnar vikur,“ segir Jóhannes og hellir upp á kaffi. Dagurinn er ekki allur enn. Teymið sem hefur unnið með honum á lokametrunum hefur barið saman handrit úr flóknum skjölum og reynt að setja upplýsingarnar sem fundust í eitthvert samhengi. Þeir Aðalsteinn Kjartansson, Helgi Seljan, Ingi Ragnar Ingason, Þóra Arnórsdóttir og Sævar Jóhannesson hjá RÚV hafa öll lagst á eitt við verkið.

Í spennufalli

Á meðan Jóhannes les fréttir af tilkynningu upplýsingafulltrúa Sigmundar Davíðs til erlendra fréttamiðla, gægist ég til að skoða töfluna á veggnum, þar sem hann hefur púslað brotunum saman.
„Þetta er gjörsamlega óskiljanleg yfirlýsing,“ segir Jóhannes og hristir höfuðið. „Er maðurinn hættur eða ekki?“

25877 Joi_KR 05214
Jóhannes Kr. Kristjánsson á vinnustofu sinni.

Óumdeildur maður vikunnar er úrvinda eftir spennufallið og áreitið sem hefur verið linnulaust síðan á sunnudaginn. Eftir Kastljósþáttinn hefur Jóhannes verið meira og minna í símanum og svarað fyrirspurnum frá erlendum blaðamönnum. „Nú vildi ég helst vera staddur á báti í Önundarfirði, fjarri öllum símum og fréttum. Þetta hefur verið svakalegur rússíbani.“

Trúði ekki sínum eigin eyrum

Upphafið að þessu öllu var í fyrrasumar þegar Jóhannes hafði unnið með ICJI samtökunum í á annað ár.„Ég var beðinn um að koma á símafund með þeim en vissi ekki hvert tilefnið var. Ég var eitthvað seinn fyrir svo ég sat í bíl þegar fundurinn átti sér stað. Í stuttu máli var mér sagt að samtökin væru að vinna að stærsta leka sögunnar frá stærstu lögfræðistofu Panama í heimi aflandsviðskipta. Þar kæmi nafn forsætisráðherra Íslands við sögu. Ég var spurður hvort ég vildi taka þátt í að skoða þetta. Á þessari stundu fraus allt í kringum mig. Ég bara trúði þessu ekki. Í þessu samtali heyrði ég fyrst af félaginu Wintris og nafn eiginkonu forsætisráðherra. Ég hafði ekki hugmynd um hver hún var. Í kjölfarið var ég beðinn um að koma til Washington til að kanna málið nánar. Ég játti því strax.“

25877 Joi_KR 05217
Síminn hjá Jóhannesi hefur ekki stoppað síðan Kastljós þátturinn var sýndur á sunnudag.

Þá tók við ferli þar sem Jóhannesi var kynnt hvernig unnið yrði úr skjölunum. Fjölmargir blaðamenn voru beðnir um að taka þátt í verkefninu og í upphafi var Jóhannes algjörlega einn síns liðs. Atvinnulaus og án nokkurs baklands í fjölmiðli.

„Það komu alveg tímabil á meðan ég vann að þessu þar sem ég leiddi hugann að því hvort þetta myndi hafa einhverjar afleiðingar fyrir mig persónulega eða fjölskyldu mína. Hver myndi ekki hugsa það, vinnandi að umfjöllun af þessu tagi um valdamesta fólkið í landinu? Þess vegna gat ég engum sagt hvað ég var að gera. Vinir og ættingjar höfðu áhyggjur af því að ég væri ekki gera neitt og spurðu konuna mína hvort ég ætlaði ekkert að fara að vinna.“

Undrandi á viðbrögðunum

Jóhannes segist strax hafa áttað sig á því að um stóra frétt væri að ræða. „En ég gat ekki ímyndað mér að viðbrögðin yrðu svona sterk. Upplýsingarnar eru allar í miðlægum gagnagrunni og þó ég hafi leitarheimild þá er hægt að grafa sig endalaust ofan í gögnin. Skjölin komu í nokkrum hollum og smátt og smátt teiknaðist upp mynd af tengslum íslenskra áhrifamanna við skattaskjól. Jafnvel þó Ísland sé mjög fyrirferðamikið í skjölunum er snúið að skilja flétturnar milli aflandsfélaga og banka og hvernig tengslin eru falin.“

Á miðvikudag birtist umfjöllun í þættinum Uppdrag granskning í sænska sjónvarpinu, um aðdragandann og eftirmál af viðtali þeirra Jóhannesar og Sven Bergman við Sigmund Davíð. Þátturinn var sýndur á RÚV í gær, fimmtudag. Sven er hluti af rannsóknarteymi þáttarins og lýsir sinni upplifun af viðtalinu í þessum Fréttatíma. Viðtalinu sem þeir vissu að myndi ráða framtíð forsætisráðherrans og mögulega ríkisstjórnarinnar allrar.

viðtalið
Sven Bergman og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson í ráðherrabústaðnum þann 11. mars.

„Ég taldi ekki ráðlagt að íslenskur blaðamaður „konfrontaði“ ráðherrann með upplýsingunum sem við höfðum undir höndum. Það væri ekki nægileg vigt í því. Ég viðraði þetta við blaðamannasamtökin ICIJ og þeir skildu mín sjónarmið. Við ákváðum því að þróa málið áfram. Samtökin héldu utan um það hvernig birtingar á upplýsingum úr Panama-skjölunum færu fram. Þeir höfðu sett öllum blaðamönnunum sem unnu að þessu frest um að vera búnir að afla allra viðtala og athugasemda í byrjun mars. Ég fullvissaði þá um að um leið og Sigmundur yrði spurður út í félagið Wintris, springi málið og færi út um allt. Allir gerðu sér grein fyrir alvarleika málsins með Sigmund Davíð og okkur var veitt undanþága til að taka viðtalið þann 11. mars. Síðan þá hafa Sigmundi gefist mjög mörg tækifæri til að skýra sín mál betur.“

Æfðu viðtalið áður

Í þættinum voru sýndar upptökur af mínútunum fyrir og eftir viðtalið. „Við vorum búnir að ræða það, að við mættum búast við hverju sem er og reyndum að sjá fyrir okkur aðstæður sem gætu komið upp. Við vissum líka að það væri alveg sama hvernig við undirbyggjum okkur, aðstæðurnar yrðu einhvernveginn allt öðruvísi. Við vorum hinsvegar öruggir með allt saman og vissum að við værum að gera það eina rétta í stöðunni. Það var fyrirsjáanlegt að við myndum fá gagnrýni fyrir það á hvaða forsendum við fengjum Sigmund Davíð í viðtal. Okkur fannst almannahagsmunir vega þyngra en rökin fyrir því að fá viðtal með formlegri leiðum.“

Í þættinum sést hvernig Sven og Jóhannes undirbúa sig undir það versta, það sem síðar átti eftir að koma á daginn, að Sigmundur Davíð gengi út úr viðtalinu. „Ef hann labbar í burtu vil ég geta fylgt honum eftir,“ segir Jóhannes.
Þeir ræða nákvæmlega hvenær hann á að stilla sér við hlið Sven og bera upp spurningu á íslensku.

Í sænska þættinum er einnig vikið að persónulegri sögu Jóhannesar. Af blaðamanninum sem hefur fengið sinn skerf af mótlæti í lífinu og flestir landsmenn þekkja fyrir að gefa óvart svolítið af sjálfum sér um leið og hann fjallar um mannleg málefni í fjölmiðlum. Ekki síst þegar hann varpaði kastljósinu að umfangsmikilli neyslu rítalíns á götum borgarinnar, eftir að dóttir hans, Sigrún Mjöll, lést af völdum fíkniefna árið 2010. Jóhannes fór í gegnum sorgina eftir dótturmissinn með því að sökkva sér í vinnu. „Ég hugsa til Sissu á hverjum einasta degi. Hún var alltaf svo stolt af mér. Hin börnin mín halda mér gangandi og eru mér endalausir gleðigjafar,“ segir Jóhannes.

Hann fékk mikið lof fyrir umfjöllunina en skömmu síðar varð hann niðurskurði RÚV að bráð og missti vinnuna. Hann hefur oft verið án atvinnu og var sennilega eini blaðamaðurinn sem vann við að greina Panama-skjölin, án þess að vera á launum hjá fjölmiðli á meðan.
„Ég var algjörlega einangraður í þessu Panama-verkefni til að byrja með og sagði örfáum frá því sem ég var að gera. Bara fólki í mínum innsta hring sem ég treysti. Konan mín var minn klettur í gegnum þetta en ég gat ekki gert kollegum mínum að segja þeim frá þessu. Við áttum engan pening á meðan ég var í þessu svo ég tók að mér að ritstýra tímariti Samhjálpar. Það reddaði jólunum fyrir okkur.“

25877 Joi_KR 05223
Jóhannes við púsluspilið sem hangir uppá vegg á vinnustofunni.

Jóhannes segist hafa kynnst Aðalsteini Kjartanssyni blaðamanni á blaðamannaráðstefnu í Lillehammer í Noregi fyrir nokkru og litist vel á hann. Hann hafi því fengið hann til liðs við sig við úrvinnslu gagnanna og Aðalsteinn hafi hellt sér í málið af fullum þunga. „Hann er rosalega flottur gagnablaðamaður með tölvureynslu og kann ýmislegt fyrir sér.“ Þeir Jóhannes og Aðalsteinn hafa stofnað fyrirtækið Reykjavík Media sem hlotið hefur rúmlega ellefu milljónir króna í fjárframlög frá almenningi í gegnum hópfjármögnunarsíðuna Karolina Fund eftir að Kastljósþátturinn var sýndur.

„Ég leitaði til þeirra sem ég treysti best, þeirra Kristins Hrafnssonar, sem er mér einskonar lærifaðir í blaðamennsku og hefur kennt mér svo margt. Inga R. og Helga Seljan sem ég hef unnið með svo oft áður og þekki svo vel. Þóru Arnórsdóttur, ritstjóra í Kastljósi. Þetta er svo gríðarlega öflugt lið með mikla reynslu að baki og þau lögðu svo mikið til málanna. Án þeirra hefði þessi umfjöllun aldrei orðið það sem hún varð.“

Vann þetta ekki einn

Jóhannes segir það líka hafa verið ómetanlegt að geta speglað fréttirnar, sem komu upp úr krafsinu, í þeim alþjóðlegu blaðamönnum sem tóku þátt í að greina skjölin. „Til dæmis varðandi stjórnmálamennina. Erlendu kollegarnir voru gallharðir á því að mál Sigmundar Davíðs snerist ekki um lagatæknileg atriði heldur siðferði valdamesta fólks landsins. Hér heima hefur umræðan hinsvegar aðeins snúist um lögfræði, það er eins og siðferðið skipti ekki máli.“

Í sænska sjónvarpsþættinum er atriði sem tekið var upp á Íslandi í janúar þar sem sést til Jóhannesar og Sven fyrir utan stjórnarráðið, þar sem þeir virða fyrir sér ráðherrana sem ganga á ríkisstjórnarfund. „Þegar glæsivagnarnir birtast veistu að það er ríkisstjórnarfundur þarna inni,“ segir Jóhannes. „Þegar ég sé þá núna, þá hugsa ég hversu falskir þeir eru.“

J'oi og sven
Jóhannes Kr. Kristjánsson og Sven Bergman fyrir utan stjórnarráðið.

Eins og sagt hefur verið frá er frekari tíðinda að vænta úr Panama-skjölunum sem enn á eftir að opinbera. Upplýst hefur verið um að nöfn 600 Íslendinga komi fyrir í þeim og frétta af þessu sé að vænta í maí.
„Menn eru stanslaust að hringja í mig og biðja mig um nafnalistann. Það er ekkert svoleiðis til. Ég hef leitarheimild í gagnagrunni þar sem fundist hafa íslensk nöfn en ég hef ekkert leyfi til að gefa út lista. Aðeins ICJI hefur slíkt leyfi. Í maí munu samtökin opna fyrir sjónrænan gagnagrunn þar sem hægt verður að leita eftir nöfnum tengdum aflandsfélögum. Ég veit að þó nokkrir einstaklingar hafa þegar leitað sér lögfræðiaðstoðar vegna fyrirhugaðra umfjallana og það er titringur vegna þess sem á eftir að koma.“

Jóhannes segir að það sé hafið yfir allan vafa að það sé almannahagur að fólk fái upplýsingar um hverjir reyni að fela peninga sína í skattaskjólum.

„Ef siðferðið er ekki lagi hjá þeim allra valdamestu, sem leggja línurnar fyrir allt samfélagið, þá erum við á vondum stað,“ segir Jóhannes að lokum áður en hann fer heim að leggja sig og heldur til Svíþjóðar á ráðstefnu í blaðamennsku.

 

The post Ég trúði þessu ekki sjálfur appeared first on Fréttatíminn.


Viewing all articles
Browse latest Browse all 7652